Feill í markaðsfræðinni

johanna_diddi___jpg_550x400_q95 Eitthvað hefur markaðsfræðingurinn lesið vitlaust í fræðin. Hann sendir út fréttatilkynningu og boðar til blysfarar til að þrýsta á Jóhönnu Sig. til að bjóða sig fram til formanns. Hann var sá eini sem mætti. Frekar neyðarleg uppákoma og spurning hvort þetta hafi áhrif á ákvörðun Jóhönnu, öfugt við það sem til var ætlast.
mbl.is Enginn mætti í blysförina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Hilmarsson

Er ekki rétt að stjórnvöld ráði manninn strax til starfa?
Það vantar örugglega góða markaðsmenn til að flykka upp á ímynd lands og þjóðar erlendis.
Kveðja
HH

Hörður Hilmarsson, 12.3.2009 kl. 09:10

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessi blysför var fyrirfram dauðadæmd.  Það verður að finna einhverjar áhrifaríkari aðferðir til að lagfæra forystuvanda Samfylkingarinnar.

Jóhann Elíasson, 12.3.2009 kl. 09:18

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Markaðsfræðin klikkaði heldur betur þarna!

En hvaða skoðun hefur Jóhanna á ESB-aðild, veit það einhver? Í hinu farsæla samstarfi hennar við VG fer afskaplega lítið fyrir slíkri umræðu. Sem er ágætt ef það þýðir að þau séu hætt við, en verra hinsvegar ef framkvæmdastjóri Samfó situr á meðan ásamt "vel völdum" flokksgæðingum í reykfylltu bakherbergi og fyllir út umsóknina.

Stöndum vörð um fullveldið: setjum x við L fyrir lýðræðislegar lausnir.

Guðmundur Ásgeirsson, 12.3.2009 kl. 09:21

4 Smámynd: Einar B  Bragason

Sé að þú ert velskrifandi :)

Einar B Bragason , 12.3.2009 kl. 09:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband