Innantóm slagorð

Einhverntíma var talað um "Reyklaust Ísland" og "Fíkniefnalaust Ísland" og nú á að fara að tala um "Banaslysalaust Ísland" .

Er ekki eitthvað kolrangt við þessi slagorð? Slagorð eiga að vera trúverðug, því ef þau eru það ekki þá verður baráttuefnið ótrúverðugt. Ég tel að vissulega megi ná miklum árangri í ofangreindum baráttumálum, en allt tal um að við útrýmum hinu og þessu úr samfélaginu, er í besta falli óraunhæft, en í versta falli skaðlegt hinu mannlega samfélagi. Auk þess hafi markmið af þessu tagi haft tilhneigingu til að fara úr böndunum á ýmsa lund, ekki síst í kostnaðarlegu tilliti.

Bara bílbeltin ein, ef allir notuðu þau, alltaf, gerði það að verkum að banaslysum í umferðinni mynda fækka um 30%. Ef tekist hefði að stöðva drukknu ökumennina áður en þeir hófu sína hinstu för, þá hefði einnig mátt fækka banaslysum umtalsvert. Ef allir myndu virða umferðarlögin, þá yrðu engin banaslys, eða næstum aldrei. Fólk getur jú orðið bráðkvatt undir stýri og drepið aðra í leiðinni. En hversu raunhæft er að allir virði umferðarlögin? Við erum að tala um alla ökumenn á aldrinum 17-100+ ára, auk gangandi og hjólandi vegfarenda, sem geta verið á aldrinum niður í leikskólaaldur. Við erum að tala um að engin geri mistök, aldrei.

Ungir karl-ökumenn á aldrinum 17-19 ára, er mesti áhættuhópurinn hvað banaslys og alvarleg slys í umferðinni varðar. Hjá þeim er hraðakstur ofarlega á blaði ásamt ölvunarakstri. En aldraðir ökumenn eru einnig áhættuhópur. Athygli fólks og viðbragðsflýtir skerðist oft með aldrinum og fólki hættir til að gera mistök. Einnig geta sjúkdómar komið við sögu ökumanna, lyfjaneysla þeirra o.fl.

Það þarf að skerpa á öllum þáttum er varðar umferðaröryggi.

  • Vegakerfið
  • Umferðaráróður (auglýsingar)
  • Umferðarfræðsla, almenn
  • Endurmenntun/símenntun
  • Fræðsla í grunnskólum
  • Fræðsla meðal eldri borgara
  • Lögregla

Það er heilmikið sem getur áunnist með markvissum vinnubrögðum, en þá þurfa markmiðin líka að vera skýr.


mbl.is Banaslysum í umferðinni verði útrýmt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband