Traust gagnvart hverjum?

Skapa traust og trúverugleika gagnvart hverjum? Samfylkingarfólki og V-grænum? Ekki virtist skorta á trúverugleikan gagnvart Seðlabankastjórninni þegar AGS lánaði okkur. Ekki heldur vilyrði ýmissa þjóða til hins sama. Gerðu þessir aðilar kröfu um að Davíð yrði vikið frá?

Niðurstöður rannsóknarnefndarinnar um aðdraganda bankahrunsins munu liggja fyrir í nóvember. Ég get alveg beðið rólegur þangað til, en vinstrimenn vilja flýta aftökum áður en það verður of seint. Þeir óttast niðurstöður nefndarinnar.

bonuskapitalisti3


mbl.is Lýsir miklum vonbrigðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll gamli minn....

 Það er ljóst að sú rannsóknarnefnd sem er að störfum inni í seðlabankanum kemur til með að upplýsa að þar hefur verið unnið þrekvirki síðustu mánuði. 

 Vinstra liðið er skíthrætt við niðutstöðuna og reynir að blinda almúgan þessar mínúturnar með einhverjum skíta-populisma til að fá fína kosningu eftir nokkrar vikur. 

Þegar niðurstaðan liggur fyrir og vinstra-fólkið verður gert að athlægi, þá verður gaman að  sjá hvað næsta "bylting" verður kölluð. 

"Burt-með-beljuna-byltingin" ???

Nói Blomsterberg (IP-tala skráð) 9.2.2009 kl. 02:15

2 Smámynd: Offari

Staðreyndin er sú að vinstra liðið sættir sig ekki við rannsóknarniðurstöðu hægra liðsins og öfugt. Ég er til í að fórna öllu gamla draslinu til að hægt verði að byggja upp aftur. Fortíðin þarf að víkja fyrir framtíðini og vonandi fara stjórnmálamenn seðlabankastjóri og forseti að skilja það.

Offari, 9.2.2009 kl. 11:38

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Rannsóknarnefndin er þverpólitísk með aðkomu einhverra útlendinga skilst mér. Ég held að vinna nefndarinnar sé hafin yfir allan pólitískan vafa.

Gunnar Th. Gunnarsson, 9.2.2009 kl. 12:24

4 Smámynd: Offari

Vonandi nægir það.

Offari, 9.2.2009 kl. 12:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband