Enn einn populistinn

Sigmundur með arnar-augnaráðið fellur eins og flís við rass Samfylkingarinnar. Sigmundur Ernir gaf út einhverskonar ævisögu fyrir nokkrum árum. Hún fór illa í mig og ég veit að svo var um fleiri. En ef hann kemst á þing og honum tekst að koma í veg fyrir að það sé refsivert að eignast börn í þessu þjóðfélagi, eins og hann vill meina, þá verður það í sjálfu sér merkilegt.

Ég get ekki sagt að mér hafi verið refsað sérstaklega fyrir mín börn. Ég hef hins vegar gengist glaður undir ábyrgðina á þeim.


mbl.is Sigmundur Ernir í pólitíkina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

...hvað ertu eiginlega að tala um?

Páll Geir Bjarnason, 6.2.2009 kl. 17:38

2 Smámynd: Offari

Það er refsivert að eiga pólitíska foreldra.

Offari, 6.2.2009 kl. 17:44

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég skil ekki spurninguna Páll.

Já, manni hefur sýnst það

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.2.2009 kl. 18:15

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, manni hefur sýnst það.... Offari

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.2.2009 kl. 18:16

5 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Þetta: "En ef hann kemst á þing og honum tekst að koma í veg fyrir að það sé refsivert að eignast börn í þessu þjóðfélagi, eins og hann vill meina"

Fatta ekki alveg. Ertu til í að útskýra?

Páll Geir Bjarnason, 6.2.2009 kl. 18:26

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Í fyrsta lagi er ekki refsivert að eignast börn á Íslandi. Þvert á móti er barnafólk aðstoðað á ýmsa lund. Hins vegar eru lönd, eins og t.d. Danmörk sem gera mun betur við fjölskyldufólk heldur en við. Þrátt fyrir það er fæðingartíðni minni þar en hér.

-

Það verður spennandi að sjá hugmyndir Sigmundar Ernis.

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.2.2009 kl. 18:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband