Júdasarkossinn

Þið hafið kannski heyrt vísuna sem Páll Pétursson orti þegar Ingibjörg og Geir kysstust á Þingvöllum.  Hún var svona.

      Helvíti er að heyra og sjá

      Haarde þennan sómamann
      kyssa beint á kjaftinn á
     kerlingu sem bítur ' ann.


 Vísa ort þegar Geir tilkynnti stjórnarslit og sagði þau Ingibjörgu Sólrúnu hafa kvaðst með kossi:  

   Að Sólrún hafi karlinn kysst,
   er kærleiksþrungin saga.
   En Júdas líka kvaddi Krist
   með kossi forðum daga.

mbl.is Mögnuð fráhvarfseinkenni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlédís

Er ekki fulldjúpt í tekið árinni að líkja Geir við Krist - eða Júdas ?    ;)

...annars er vísan nokkuð lipurt kveðin.

Hlédís, 5.2.2009 kl. 08:56

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Koss Ingibjargar var Júdasarkoss

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.2.2009 kl. 11:19

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég hef alla tíð átt góðan vinskap og samskipti við Pál Pétursson allt frá því er við vorum nokkurs konar samsveitungar á æskuárum. Ekki minnkaði þessi vinskapur þegar kona hans og konan mín bundust vinaböndum í borgarstjórn Reykjavíkur.

Páll er bóndi á Höllustöðum og var þingmaður og ráðherra.

Hann var eitt sinn forseti Norðurlandaráðs á fundi þess í Reykjavík.

Þegar Stefán Guðmundsson bauð sig fram á móti Páli í fyrsta sæti í prófkjöri Framsóknarmanna vildi ég að sjálfsögðu leggja mitt af mörkum fyrir Pál, þótt Stefán væri að vísu líka góður fornvinur minn.

Ég lagði því Páli til stuðning minn í vísuformi:

Upp, upp mín sál og allt mitt geð

og vinafjöldinn bóndans með,

því Stefán vill fella Palle Ped

præsident paa Hallested.

Ómar Ragnarsson, 5.2.2009 kl. 12:38

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þetta Ómar. Skemmtileg vísa

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.2.2009 kl. 13:59

5 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Ég man nú bara eftir Ómari með bakföllin:

Norðan fjalla Ómar er
afturhallatregur.
Prúðan skalla skáldið ber
en skelfing kallalegur.

Held að Flosi sjálfur eigi þessa.

Sigurður Sigurðsson, 5.2.2009 kl. 17:54

6 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

En eigi mun ég yrkja ljóð
aftur nú að sinni.
Enda hef ég fögur fljóð
fjögur, hérna inni.

Sigurður Sigurðsson, 5.2.2009 kl. 17:56

7 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

En greyið Geir að kyssa þessa
gribbu, Júdasínu.
Enda varð hann alveg hlessa
á hryggbrotinu fínu.

Sigurður Sigurðsson, 5.2.2009 kl. 18:02

8 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hehhe... góður Sigurður

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.2.2009 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband