Sigmundur Davíð, með betlistaf í hendi

Ingvi Hrafn Jónsson var með nýja formann Framsóknarflokksins í viðtali hjá sér í gær. Með Sigmundi var ritari flokksins, Eygló Harðardóttir. Ég hef verið frekar jákvæður gagnvart þessari forystubreytingu hjá Framsókn, en Sigmundur olli mér vonbrigðum í þessu viðtali.

Þegar Ingvi Hrafn spurði um aðgerðarplan ef hann réði, þá virtist það helst ganga út á það að sannfæra Norðmenn og/eða aðrar "vinaþjóðir" okkar um að hjálpa okkur við að borga óreiðuskuldirnar. Að við gætum hvort eð er aldrei staðið undir þessu.

Það er sjálfsagt allt í lagi að þyggja aðstoð, en að það sé "planið" er ekki mjög sannfærandi í mínum eyrum. Sigmundur er ungur og skeleggur, en hann á sennilega margt eftir ólært í pólitíkinni. Í þeim kosningaslag sem framundan er, þarf hann heldur betur að brýna vopn sín.


mbl.is Rætt um efnahagsmál á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: 365

Mér fannst það nú heldur Invi Hrafn sem tuðaði um að fara af stað með betlistafinn, en allt er betra en að sitja með hendur í skauti og gera ekki neitt eins og ráðamenn gera í dag.  Það þarf að vinna traust þessara þjóða aftur.

365, 21.1.2009 kl. 14:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband