Björn Bjarnason og Arnbjörg á Reyðarfirði

Björn Bjarnason, Dóms-og kirkjumálaráðherra, hélt fund á Fjarðahóteli á Reyðarfirði í kvöld, ásamt Arnbjörgu Sveinsdóttur þingmanni kjördæmisins. Fundinn sótti um 30 manns og voru líflegar og gagnrýnar spurningar að loknum framsöguerindum. Bankahrunið var auðvitað fyrirferðarmikið í umræðunni, en einnig Evrópumálin sem var mjög fróðlegt. Það kom m.a. fram í svari Björns þegar hann var inntur eftir einhverju jákvæðu við ESB-aðild, en þá hafði hann talið upp þó nokkra galla, að allt hið jákvæða við Evrópusambandið hefðum við öðlast um leið og við undirrituðum EES samninginn.

002

003

 

 

 

 

 

Vinstri mynd: Björn flytur framsöguerindi sitt og Arnbjörg situr honum á vinstri hönd. Hægramegin situr fundarstjórinn og Reyðfirðingurinn, Þórður Guðmundsson. Á hægri myndinni er hluti fundargesta og það er Ásmundur Ásmundsson, fyrrv. togaraskipstjóri á Reyðarfirði sem ber fram spurningar sínar.

Á fundinn mætti einn "mótmælandi", en svo titlaði sig Þórunn nokkur Ólafsdóttir. Þórunn kom með tvær spurningar til Björns. Önnur þeirra var hvort Björn væri stoltur af framgöngu lögreglunnar gegn mótmælendum undanfarnar vikur og hin var hvort ekki ætti að leyfa þjóðinni að kjósa til Alþingis. Fljótlega eftir að hún hafði hlítt á svar Björns, þá laumaðist stúlkan út svo lítið bar á. Lýðræðisleg umræða og beint samband við forystumann íslenskra stjórnvalda vakti greinilega ekki áhuga hennar.

VG-NA-9-Thorunn-OlafsdottirBjörn þakkaði henni fyrir komuna en sagðist hálfpartinn hissa að sjá hana á fundinum því hann hefði einmitt verið að lesa blogg hennar þar sem hún skrifar:

"Hrokafulli fasistinn, Björn Bjarnason, verður annar framsögumanna á fundi á Fjarðahóteli á Reyðarfirði í kvöld kl 20"

Einnig skrifar hún eftirfarandi á bloggið, sem lesa má  HÉR

"Í kvöld gefst þeim sem staddir eru á Austurlandi tækifæri til hlýða á vísdómsorð Bjarnar. Hann sér sennilega fyrir sér sveitarómantíkina í hyllingum og iðar í skinninu að fá að þruma yfir illa upplýstum landsbyggðaralmúganum um eigið ágæti, yfir kósý kaffibolla í boði Alcoa".

Ég vil þakka Þórunni hlý orð til okkar landsbyggðarfólksins, en þess má geta að hún var í 9. sæti á lista VG í landsbyggðarkjördæmi formanns síns, Steingríms J. Sigfússonar, fyrir síðustu Alþingiskosningar. Engar veitingar voru í boði fyrir fundargesti, hvorki í boði Alcoa né annarra. Dómsmálaráðherrann fékk sér tebolla.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar R. Jónsson

Þórður heitir hann ;)

Annars er gott að heyra að fundurinn hefur tekist vel

Gunnar R. Jónsson, 14.1.2009 kl. 00:40

2 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Stenst þessi tala fundarmanna, 30 manns? Var lögreglan fengin í talninguna?

Ásgeir Kristinn Lárusson, 14.1.2009 kl. 01:27

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Auðvitað nafni, hvernig læt ég... leiðrétti það  og bæti smá við færsluna.

Nei, Ásgeir, engin lögregla á svæðinu, enda var mótmælandinn bara einn

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.1.2009 kl. 02:36

4 identicon

Það er ekki að spyrja að reisn þessara vinstrimanna. Yfirvegaðir og dannaðir í tali. Eða þannig....

Það er með ólíkindum að 30% þjóðarinnar geti hugsað sér að kjósa þessi ósköp. Þessu fólki skortir alla fágun og ekki er hugmyndafræði þeirra betri. Ekki er ég hrifinn af BB nema síður sé. Ég finn mig þó ekki knúinn til að uppnefna hann á niðrandi hátt í minni gagnrýni.

Einar (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband