Má heyra á þetta minnst?

Þeir sem hafa verið hvað mest áberandi í mótmælum undanfarið, eru hinir sömu og barist hafa hvað harðast fyrir umhverfisvernd á Íslandi, hvernig svo sem á því stendur. Kannski er þetta fólk einu activistarnir á landinu. Það er bara svo undarlegt, að þegar aðrar þjóðir líta á jarðhitanýtingu sem umhverfisvænt, þá líta íslenskir umhverfisverndarsinnar á nýtinguna sem glæp gegn ófæddum kynslóðum. Og hvers vegna hafa vinstrimenn eyrnamerkt sér umhverfisvernd? Fundu þeir þetta út á einhverjum krísufundi.... "Ah, umhverfisvernd.... það er engin með það, gerum það að okkar!"

Svaka bissness í því. Errm

cartoon%2010-31


mbl.is Clinton hældi íslenskum jarðhita
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Ég var staddur á einum útifundinum á Austurvelli um daginn, svona til að sýna smá lit, en mér leið eins og ég væri kominn nokkra áratugi aftur í tímann, á fund hjá Alþýðubandalaginu. Ég nenni ekki aftur á slíkan fund og ég held að fundirnir munu lognast út af sökum froðufellandi öfga sem höfða ekki til venjulegs fólks með venjulega réttlætiskennd sem hefur engan áhuga á að dæma aðra STRAX til að fá útrás fyrir hatur og reiði. 

Benedikt Halldórsson, 2.12.2008 kl. 18:12

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Björn, atvinnumótmælandi... hmmm. Er ekki lítið upp úr því að hafa?

Benedikt, þetta held ég að sé málið. Það er hellingur af fólki sem blöskrar þetta ástand og vildi gjarnan sýna "blöskrun" sína í verki á mótmælafundi, en ákveðnir aðilar hafa hertekið mótmælin. Á meðan svo er, þá er hætta á því að þetta verði aldrei meira en örfá þúsund sem mæta. Ég vildi gjarnan sjá 100 þús. manns í miðborginni að mótmæla.

Gunnar Th. Gunnarsson, 2.12.2008 kl. 18:26

3 identicon

Ég hef farið á marga mótmælafundi undanfarið og séð unglinga vera með læti og báðar stöðvarnar að mynda það, ég hef líka séð mun fleira fólk vera að mótmæla ástandinu án skrílsláta en það virðast ekki vera fréttir   Gunnar minn, þú mátt ekki trúa öllu sem þú sérð í sjónvarpinu sumir segja þig fullan að blogga en slíku trúi ég nú ekki.

í mesta lagi þá bara náttúrulega fullur og þá lika eðlisþunnur

Æja Honkanen (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 00:22

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þú virðist ekki geta tjáð þig Ævar minn, nema með persónulegu skítkasti út í mig. Þetta er að verða að ávana hjá þér.

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.12.2008 kl. 00:39

5 identicon

Ekki var nú ætlun mín að vera með skítkast og ekki sé ég nú hvar það er að finna í skrifum mínum, ég vil nú bara biðja þá sem lesa þetta að dæma það

Æja Honkanen (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 00:49

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

"í mesta lagi þá bara náttúrulega fullur og þá lika eðlisþunnur"

"óskiljanleg fáfræði og hreinlega sorglegt, manngreyið (ég) virðist allgjörlega úr takt við raunveruleikann"

"...held að þú ættir að taka smá frí frá blogginu"

Þetta eru bara nokkur dæmi Ævar. Get fundið mörg fleiri í svipuðum dúr. Það er alveg hægt að vera ósammála án þess að vera með svona.

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.12.2008 kl. 01:11

7 identicon

Gunnar minn, ef þú upplifir þig særðan vegna athugasemda skrifuðum af mér á blogginu þínu  þá biðst ég æðrulaus afsökunar á því

Fremur þykja mér þessar tilvitnanir hjá þér klénar og þinn stíll að birta ekki pistla þína sem þetta var sagt við

 Eitt er þó skomdið  en kemur samt ekki á óvart,, Karlinn minn, ég átti að sjálfsögðu aldrei við að þú ættir að koma með comment á þetta heldur aðrir sem lesa það, ef einhverjir

Æja Honkanen (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 01:48

8 identicon

Nei ég hafði ekkert við efni færslunnar að athuga, en mun áhugaverðara að sjá að engin commet er um færsluna heldur allt öðru sem er lika kunnugleg úr þessum ranni  og endilega komið með færslu um það, er spenntur að sjá athugasemdirnar frá ykkur

Æja Honkanen (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 02:06

9 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þér er alveg fyrirgefið Æja minn, en ég upplifi mig ekkert tiltakanlega særðan. Mér bara leiðist komment í þessum dúr.

Takk fyrir stuðninginn Hippó

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.12.2008 kl. 02:07

10 identicon

það er gott, allir sofa þá vel í nótt en þiggja og þakka fyrir stuðning frá hugleysinga eins og þú kallar þá sem ekki skrifa undir nafni segir  manni líka  margt

Ævar oddur Ævarsson (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 02:25

11 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Margir nafnleysingjar kunna mannasiði og nota ekki nafnleyndina til þess að drulla yfir fólk, eins og sumir stunda hér í skjóli leyndarinnar. Þessir dónar  hafa komið óorði á nafnlausa. Sumir hafa sínar ástæður til að skrifa undir nafnleynd og ekkert við það að athuga.

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.12.2008 kl. 02:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband