Fólk er að átta sig

Vatnsmýrin. Þegar R-listinn lét kjósa í vitlausustu kosningum þjóðarinnar, um flugvöllinn í Vatnsmýrinni þá var það gert til þess að afla sér vinsælda. "Samræðupólitíkusarnir" reiknuðu með að kosningin sýndi svo ekki væri um villst hversu lýðræðisleg vinnubrögð R-listinn viðhefði. Svo þegar úrslitin lágu fyrir með afar dræmri kosningaþátttöku og naumum meirihluta, að íbúar Reykjavíkur vildu flugvöllinn burt, þá hömpuðu andstæðingar flugvallarins niðirstöðunni sem sigri og skýrum vilja borgarbúa. Ekkert var athugaður vilji annara landsmanna. Hvílík della!

Reykjavík er byggt á löngu og mjóu nesi með útkeyrslu í eina átt, þ.e. í austur. Ekki er fyrirsjáanlegt að það náist sátt um veg yfir Skerjafjörð suður til Álftaness vegna umhverfissjónarmiða og hrepparígs svo þétting byggðar í miðbænum kallar á mörg dýr samgönguvandamál. Margar borgir öfunda Reykvíkinga af staðsetningu flugvallarins. Fjárhagslegur ávinningur af honum var lítið atriði í "góðærinu" að mati margra en ég held að þegar fólk sér það svart á hvítu, sérstaklega nú þegar kreppir að, að þá breyti enn fleiri um skoðun varðandi flugvöllinn og að hann verði í Vatnsmýrinni um fjölmörg ókomin ár.


mbl.is 64% Reykvíkinga vilja flug í Vatnsmýri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt V. Warén

Skiptum á bankalóðum og landskikanum sem Reykjavík á undir vellinum í Vatnsmýrinni og þá er málið dautt til frambúðar. 

Benedikt V. Warén, 10.11.2008 kl. 17:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband