Kemur á óvart

Það kemur mér reyndar á óvart að hækkanir skuli ekki hafa verið meiri á innfluttum matvælum á undanförnum vikum. Miðað við hrap krónunnar, þá bjóst ég við meiru. Ég reyni samt að sneiða sem mest hjá innfluttu dóti, meira að segja keypti ég íslenskan bjór um daginn, í staðinn fyrir danskan Happy 

cartoon_ca_re


mbl.is Verðbólgan nú 15,9%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Ég er alveg sammála þér, en eins og ég skýri í athugasemd minni, þá er ástæðan líklegast að innflutningur hefur að miklu leiti lagst af.

Marinó G. Njálsson, 27.10.2008 kl. 09:47

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já og vonandi tekur fólk höndum saman og kaupir íslenskt, þar sem því verður við komið. Í "góðæri" undanfarinna ára held ég að fólk hafi að mestu hætt að spá í þetta, en nú þarf að verða breyting á.

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.10.2008 kl. 09:56

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ekki síst að kaupa íslenskt vinnuafl

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.10.2008 kl. 09:57

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

En við þekkjum það reyndar frá fyrri tíð að innflutt dót hækkaði stundum nánast samdægurs og íslenska krónan lækkaði.

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.10.2008 kl. 09:59

5 identicon

Ég fór að kaupa kuldaskó (merki víking) á 10 mánaða gamalt barn, fór í hagkaup og kostaði litlar 11.900!

Fór í Barnafataverslun á glerátorg hér á Akureyri ætlaði að kaupa lambhúshettu íslenskt merki kostaði litlar 5.000 kr!!

Fór í 66° dóttir mín var búin að sjá auglýsta úlpu regnstakk fór og kíkti á og kostaði litlar 47.000!!!

Þvílíkt andskotans okur!! Fór að versla i Bónus og verslaði fyrir vikuna ekkert bruðl bara nauðsynjavörur 24 þús! Alveg eins og ég hefði verið að versla inn fyrir jólin!!

Þetta er orðin klikkun út í eitt að lifa hér. Sumar vörur hafa hækkað alveg um 100% og eðlileg hækkun 40% til 50%!

Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 10:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband