Sannur Íslandsvinur

eivörÞað er ljúft að heyra það að Eivör Pálsdóttir hafi samið texta til huggunnar hnípinni þjóð. Mér verður ósjálfrátt hugsað til litlu frændþjóðar okkar. Hvernig hefðu Íslendingar brugðist við ef Færeyingar væru í sömu sporum og við? Ég vil trúa því að það hefði verið á svipuðum nótum.
mbl.is Eivör söng von í brjóst íslensku þjóðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Færeyingar vita hvað við erum að fást við. Þeir misstu fólk úr eyjunum í kreppu á fyrri hluta níunda áratugarins sem samsvarað hefði 35 þúsund Íslendingum úr landi. Mér finnst þeir alltaf hafa verið og vera enn sönnustu Íslandsvinir heims.

Á sama hátt ættum við að vera sönnustu Færeyjavinir heims.

Ómar Ragnarsson, 21.10.2008 kl. 23:02

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, sennileg er engin þjóð líkari okkur, ekki einu sinni Norðmenn.

Gunnar Th. Gunnarsson, 21.10.2008 kl. 23:12

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gunnar ég bjó í Noregi og eftir það þá eru Norðmenn sú þjó sem ég vil síst líkjast og hef ég þó farið víða.  Einhver sagði: Það væri fínt að vera í Noregi ef það væru ekki Norðmenn þar, mikið til í þessu.

Jóhann Elíasson, 22.10.2008 kl. 07:51

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Heheh þú segir nokkuð. Ég hef komið alloft til Noregs og hef alltaf kunnað ágætlega við Norðmenn, þó það séu ákveðin element í þeim sem koma manni spánskt fyrir sjónir

Gunnar Th. Gunnarsson, 22.10.2008 kl. 10:42

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sumir segja reyndar að Norðmenn séu "Gyðingar" norðursins

Gunnar Th. Gunnarsson, 22.10.2008 kl. 10:42

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er sagt að forfaðir Norðmanna hafi verið Skoti og formóðirin Gyðingur og útkoman hafi verið Norðmaður.

Jóhann Elíasson, 22.10.2008 kl. 11:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband