Garmin - hugmynd fyrir forritara

garmin

Ég fékk mér Garmin- staðsetningartæki um síðustu jól. Alveg magnað tæki og það hefur oft komið mér vel að hafa það. En ég hef stundum velt fyrir mér hvort ekki sé hægt að nýta þessa tækni betur m.t.t. ferðamanna, bæði innlendra og erlendra,  sem vilja fræðast betur um landið okkar. Kostnaður við slíka forritun er eflaust töluverður en ýmsir aðilar gætu fjármagnað og fjárfest í verkefninu, t.d. aðilar úr ferðaþjónustunni og jafnvel sveitarfélög sem vilja koma byggðarlagi sínu "á kortið".

Ég teiknaði myndina að ofan í paint-forritinu, skýrir hún sig ekki alveg sjálf?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, þannig færðu jafn steingelt upplýsingakerfi og er víða um land í "upplýsingaturnum", þú ferð og leitar að tjaldstæði eða ódýrri gistingu, en færð ekkert nema okurstæðin, sem borga fyrir að vera listuð

Gullvagninn (IP-tala skráð) 26.9.2008 kl. 23:24

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sum sveitarfélög bjóða upp á ókeypis tjaldstæði með rafmagni og góðri hreinlætisaðstöðu. Það sem einu sinni er skráð í svona uppl.kerfi er komið til að vera og gagnagrunnurinn gerir ekki annað en að stækka. Svo hleður maður bara inn af netinu uppfærslum, eins og gert er nú þegar.

Gunnar Th. Gunnarsson, 26.9.2008 kl. 23:39

3 identicon

Já, ég vissi af þessu hjá ykkur fyrir austan, og finnst það frábært, stefni á að heimsækja ykkur næsta sumar :-)

Gullvagninn (IP-tala skráð) 26.9.2008 kl. 23:43

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, tjaldsvæðið á Reyðarfirði er til fyrirmyndar. Þekkirðu eitthvað til fyrir austan?

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.9.2008 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband