Lögreglan undir smásjá

Ef lögreglumenn taka á fólki sem er með uppsteit, þá vantar ekki vandlætingartóninn í þeim sem gagnrýna slík vinnubrögð. Þá er lögreglan með ofbeldi og starfsmennirnir ekki starfi sínu vaxnir, segja sumir.

Ég hef heimsótt 2 fyrrverandi Austur-Evrópuríki sl. 2 ár, Pólland og Króatíu. Ekki veit ég hvaða orð fer af vinnubrögðum lögreglunnar í þessum löndum, en ég get hins vegar vitnað um það að óvíða finnur maður fyrir meira öryggi á götum borga og þar. Samt er lögreglan síður en svo áberandi á götunum í þessum löndum. Snyrtimennska er líka áberandi og rusl sést ekki á götunum,ekki einu sinni sígarettustubbar, ólíkt t.d. Kaupmannahöfn sem er að verða ein sóðalegasta borg Evrópu.

Ég sá í eitt skipti lögregluna í Krakow í Póllandi hafa afskipti af drukknum mönnum í miðbænum. Viðbrögð þeirra þegar lögreglan birtist voru frekar ólík þeim viðbrögðum sem maður sér á Íslandi þegar lögreglan þarf að hafa afskipti af drukknu fólki. Mennirnir í Krakow urðu greinilega lafhræddir og hlýddu skipunum lögreglunnar í einu og öllu. Löggan hefði þess vegna getað hent til þeirra handjárnunum og bent þeim á bílinn sem þeir áttu að fara í, þeir hefðu handjárnað sig sjálfir og labbað svo í bílinn.

Á Íslandi sætir lögreglan stöðugum árásum almennings ef þeir sýna minnstu hörku í viðskiptum sínum við drukkið fólk. Er ekki tími til kominn að almenningur láti af þeim ósóma? Viljum við ekki að drukkið fólk sýni lögreglunni virðingu, jafnvel þó sú virðing sé óttablandin?

funny-police

look-who-the-police-caught-totday

police2

 


mbl.is „Ég skal drepa konuna þína!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Jú, & jú.

Steingrímur Helgason, 14.9.2008 kl. 20:38

2 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ó jú og aldeilis!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 14.9.2008 kl. 20:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband