Athyglisvert

Urriðafoss verður sennilega fallegri eftir virkjun, en ekki eyðilagður eins og andstæðingar virkjunaráformana hafa haldið fram. Afhverju kemur það ekki á óvart að þetta "umhverfislið" fari með tóma steypu í málflutningi sínum?

Endilega smellið á fréttalinkinn hér að neðan og horfið á viðtalið við hjónin á bænum Urriðafossi við Þjórsá.


mbl.is Fossinn sem gleymdist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, náttúruperlurnar eru víða. Við erum ekkert að verða uppiskroppa með þær.

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.7.2008 kl. 11:12

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ekki er að spyrja að því. Ég hef heyrt áður nákvæmar útlistanir virkjanasérfræðinga á því hvernig hægt sé að virkja Dettifoss og Gullfoss án þess að þeir hverfi og greinilegt er að margir kaupa þessar fullyrðingar.

Sem sagt: Drífa sem fyrst í því að virkja Dettifoss og Gullfoss!

Ómar Ragnarsson, 30.7.2008 kl. 11:29

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er ekki verið að tala um að virkja Gullfoss og Dettifoss. Það er bara í þínum viltustu draumum Ómar....eða martröðum er e.t.v. réttara að segja.

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.7.2008 kl. 12:03

4 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Endilega smellið á þennan fréttalink og horfið á fréttina um að allir jarðeigendur í Flóahreppi - nema einn - eru andsnúnir virkjuninni. Við vitum núna hver þessi eini er.

Lára Hanna Einarsdóttir, 30.7.2008 kl. 15:16

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Allir hinir.... er það af ást á landinu sem þeir samþykkja ekki virkjanir í Þjórsá?

 Eða er það einungis vegna þess að andmæli þeirra hækka verðmiðann á landinu sem LV ásælist?

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.7.2008 kl. 20:53

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Auk þess lætur þú það hljóma Lára Hanna, eins og það sé glæpur að virkja Þjórsá.

Skoðanakúgun af verstu sort!

Gunnar Th. Gunnarsson, 31.7.2008 kl. 03:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband