Hví ætti hann að gera það nú?

Það væri nú frekar ósnnfærandi ef Josef Fritzl tæki upp á því að iðrast nú, eftir 24gra ára djöfulsskap. Ef til væri iðrunarvottur í sjúkum hugarheimi þessa manns, þá hefði þetta ekki viðgengist svona lengi.

Sleeping areaCellar bathroom

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Lögreglan lýsir vistarverunni í kjallaranum sem afar þröngri með mörgum herbergjum, en sá gamli bætti við herbergjum eftir því sem fjölgaði í fjölskyldunni. "Hobby room" fær nýja og óhugnanlega merkingu.

Mér þykir það ótrúlegt að kona þessa skrímslis hafi ekkert vitað um athæfi karlsins. Einhversstaðar sá ég að ófreskjan ætti yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi. Í mínum huga er ekki til hæfileg refsing fyrir þennan verknað. En svo er ekkert víst að svona fyrirbæri eigi heima í fangelsi, frekar á stofnun fyrir alvarlega geðveika einstaklinga.

 


mbl.is Sýnir enga iðrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

  Þó að maðurinn sé klárlega siðblindur geðvillingur er óvíst að hann verði greindur sem geðveikur.  Það er að segja óábyrgur gerða sinna vegna geðveiki.  Flest bendir til að hann hafi verið meðvitaður um að hann framdi glæp.  Gerði með öðrum orðum mun á réttu og röngu. 

  Ég heyrði í útvarpinu viðtal við íslenskan íbúa þarna sem sagði að þetta fámenna samfélag þarna væri gamaldags kaþólskt samfélag þar sem húsbóndi á heimili væri allsráðandi.  Jafnvel að húsfrú á heimilinu borði ekki með heimilisfólki heldur borði afganga eftir að annað heimilisfólk hefur lokið sér af.

  Húsbóndinn sé dóminerandi og stjórni heimili með harðri hendi.  Þetta afsakar ekki barnaníð mannsins né það að hann gerði dóttir sína að kynlífsþræl sínum.  En þetta útskýrir að örlitlum hluta hvernig maðurinn komst upp með glæp sinn.

Jens Guð, 30.4.2008 kl. 01:16

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þetta Jens, þetta er okkur óskiljanlegt, sem betur fer

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.4.2008 kl. 01:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband