Tekin!..... með trukki

laraLára Ómarsdóttir lét góma sig á óheppilegu augnabliki í beinni útsendingu, þegar hún hélt hún væri ekki lengur í útsendingu. Lára er greinilega áhugasöm í starfi sínu, það hef ég margoft séð, en hennar helsti galli er etv. hversu erfitt hún á erfitt með að leyna sinni eigin skoðun á fréttunum sem hún flytur.

Nú eru einhverjir sem halda því fullum fetum fram, að þarna hafi Láru ekki þótt nóg að flytja fréttina, heldur þurfti að búa hana til líka. En var það svo? Var ekki búið að kasta eggjum þarna, en Lára og myndatökumenn hennar misstu bara af því.

Æ, frekar vandræðalegt fyrir fréttakonuna knáu. Orðstýr deyr ekki, segir í Hávamálum. Getur það átt við í þessu tilfelli?


mbl.is Yfirlýsing frá Láru Ómarsdóttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Frekar slappt og ekki bætti illaígrunduð yfirlýsing  hennar úr.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.4.2008 kl. 11:33

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, og nú er ég búinn að hlusta á þetta og þetta virkar nú ekki sem grín á mig.

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.4.2008 kl. 12:53

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hjördís, ég næ ekki alveg þessari tengingu þinni við Lúkasarmálið. Í því máli var maður borin röngum sökum algerlega út í loftið.  Lára Ómarsdóttir hefur ekki verið borin röngum sökum. Aðeins bent á, hvað hún sannarlega sagði og spáð í hvað hún hafi verið að meina.Og eitt að lokum, fólk sem telur sig þess umkomið að setja athugasemdir á blogg annarra en læsir sínu eigin bloggi, virkar ekki mjög trúverðugt á mig.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.4.2008 kl. 15:40

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Verð að taka undir þetta hjá þér Axel

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.4.2008 kl. 16:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband