Er þetta ekki orðið gott?

Eru þessir bílstjórar búnir að stofna sín hagsmunasamtök, eins og forsvarsmaður þeirra sagði að væri á næsta leiti fyrir um viku síðan? Það verður spennandi að sjá félagatalið í þeim hagsmunasamtökum.

KOMATSU-Truck-930E_5_Leute

Þessir bílstjórar sem standa þarna við Komatsu 930e, hafa sennilega lítið gagn af kröfum atvinnubílstjóra. Það sama má segja um aðra launamenn í stéttinni. Almenningur virðist hafa mikla samúð með þessum minnihlutahópi sem brýtur lög til þess að vekja athygli á málstað sínum.


mbl.is Lögregla beitir táragasi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Kristinsson

En hvað er svona spennandi við að sjá félagatal þessara samtaka?

Pétur Kristinsson, 23.4.2008 kl. 14:20

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég er ekkert á móti mótmælum Skúli.

Pétur, þá mun koma í ljós hve fámennur þessi hópur er.

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.4.2008 kl. 16:26

3 Smámynd: Pétur Kristinsson

En breytir það einhverju? Skiptir máli hversu fjölmennur eða fámennur hópar eru þegar að þeir mótmæla? Það sem skiptir máli að í lýðræðisríki máttu viðra skoðanir þínar án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að vera handtekinn vegna rangra skoðana eins og í Kína.

Pétur Kristinsson, 23.4.2008 kl. 16:31

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sammála því, en það er samt alltaf spurning hvort litlir minnihlutahópar eigi að ráða för.

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.4.2008 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband