Og sumir voru rændir arfinum

Vísindamenn dunda sér við ýmislegt og þeir dönsku virðast hafa fundið sér verkefni. Ég sé fyrir mér hamingjusamt fólk sem er í sátt við umhverfi sitt. Ég sé fyrir mér indíana í Ameríku sem voru hamingjusamir áður en hvíta manninn bar að garði. Hamingjusamt fólk á kyrrahafseyjum, fyrir daga hvíta mannsins. Hamingjusamt fólk um gjörvallan hnöttinn, sem fær frið fyrir öðru fólki sem segir því hvernig það á að lifa lífinu.

Þjóðflokkar indíána í Norður Ameríku voru margir og fjölbreyttir. Flestir áttu þeir það sameiginlegt að bera djúpa virðingu fyrir náttúrunni. Hugtakið "eignarréttur" yfir viltum dýrum og landssvæði var þeim framandi.

Native_American_map

Kort af BNA sem sýnir helstu þjóðflokka indíána


mbl.is Fengu hamingjuna í arf frá víkingunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Kristinsson

Það sem að einkennir "hvíta" manninn er þessi gegndarlausa græðgi og trú sem boðar það að þeir þurfi að kenna ósiðmenntuðu þjóðunum hvernig á að trúa. Þetta er ástæðan fyrir mörgum stríðum og ástæðan fyrir þvi að við lifum í ósamkomulagi við náttúruna í dag annað en indíanar norður ameríku gerðu.

Pétur Kristinsson, 30.3.2008 kl. 11:48

2 identicon

Við lifum í ósamkomulagi við náttúruna í dag, en það gera indjánar líka í dag.

Þeir lifðu í sátt og samlyndi við náttúruna á árum áður, en það gerðum við líka. Ekki gleyma því. Víkingarnir báru mikla virðingu fyrir náttúrunni eins og best má sjá ef ásatrú er skoðuð sem og gömul rit frá þessum tíma.

Það er nútímamaðurinn sem er í ósamkomulagi við náttúruna - ég held það komi kynstofni okkar lítið við. 

Sigurlaug Lilja Jónasdóttir (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 17:26

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, þetta snýst líka sjálfsagt mikið um það að í dag eru of margir menn á of litlu svæði. Ef indíánarnir hefðu verið margfalt fleiri, er eins víst að þeir hefðu "uppgötvað" eignarréttinn.

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.4.2008 kl. 17:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband