Skrítinn fýr

Tom Cruise hefur hagað sér undarlega oft á tíðum, sérstaklega eftir að hann gerðist félagi í Vísindakirkjunni. Margir muna þegar hann hoppaði vitfirringslega af "gleði" í sófanum hjá Oprah, til að sýna hversu ástfangin hann væri af Katie Holmes.

Tom er svo stuttur í annan endan að hann er látinn standa upp á kassa þegar hann er með öðrum á myndum og í tökum á bíómyndum. Ekki þó á þessari mynd með henni Katie sinni.

Það er stundum sagt á ensku að  "Beauty is in the eye of the beholder". Ætli Tom fíli "good Alien looking chick"? Vísindakirkjan gerir ráð fyrir geimverum, skilst mér.

Tom_cruise_katie_holmes

Verst ef Tom er að eyðileggja þá saklausu fegurð sem Katie býr yfir.
kate27bu

Katie var kaþólsk, Tom breytti því. Einhvern vegin finnst mér þessi stúlka of saklaus og góð fyrir Tomma. Og hvern fjandann er maðurinn að gera þegar hann hverfur í nokkra daga frá þessari elsku og barninu þeirra?

 


mbl.is Alltof erfitt að vera gift Tom Cruise
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ung og óhamingjusöm, og kúguð af sjálfhverfum sértrúarofstækismanni.

Marta B Helgadóttir, 27.3.2008 kl. 14:21

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Nicole Kidman fór í rúst eftir hann....bölvaðann

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.3.2008 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband