Reka veiðimenn í tvísýnu

Vinstri grænir eru í essinu sínu.... banna, banna, banna. Þeim leiðist það ekki.

Að sjálfsögðu á að taka tillit til þess að helmingurinn af veiðitímabilinu hefur verið ófær til veiða. Ef veður verða válynd síðustu veiðihelgina, er hætt við að einhverjir ani út í óvissu. Við skulum vona að ekki fari illa.


mbl.is Óbreytt rjúpnaveiðitímabil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við vitum að rjúpan á í vök að verjast og margir virðast ekki skilja það. Skotveiðar er ein ástæðan af fleirum. Rjúpan á að fá að njóta ónýtra veiðidaga. Alls ekki fjölga veiðidögum, frekar ætti að banna allar veiðar á rjúpu í einhver ár svo slæmt er ástandið. Skiptir engu hvar í pólitík menn eru. 

Sveinn (IP-tala skráð) 21.11.2012 kl. 18:41

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ekki koma með; "margir virðast ekki skilja það".

Það eru skiptar skoðanir á því hversu veiðar hafa mikil áhrif á stofninn....

margir virðast ekki skilja það

Gunnar Th. Gunnarsson, 21.11.2012 kl. 20:24

3 identicon

Ekki þú með þennan frasa um vinstri græna. Í þessu tilfelli er þetta ópólitískt. Skotveiðar hafa gríðarlega mikil áhrif á stofninn ekki bara þeir fuglar sem falla heldur fylgir því líka mikið álag á þá fugla sem lifa af skotveiðitímann. Í dag sækja menn að rjúpum á fjórhjólum og vélsleðum til smölunar og fjöldadráps sem var ekki áður. Færri griðarsvæði en áður og nánast engin hvíld fyrir þær. Langflestir veiðimenn ganga vel um og bera virðingu fyrir fuglunum en fjöldadrápararnir hafa margfalt meiri áhrif, þar liggur munurinn á því sem áður var. Allstaðar eru það gjörðir mannanna sem valda mestum skaða í lífríkinu bæði hér og erlendis. Vegur pottþétt þyngst í hnignun rjúpnastofnsins á Íslandi og taktu eftir: "Ásamt öðrum þáttum" líka.

Sveinn (IP-tala skráð) 21.11.2012 kl. 21:46

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Eins og ég sagði þá eru skiptar skoðanir um áhrif skotveiða á rjúpnastofninn og raunar veiðar á fleiri stofnum, s.s. svartfugli.

10-20% veiðihlutfall er almennt ekki talið hafa áhrif á sæmilega stóra fuglastofna. Allt að 80% ungfugla (rjúpa) drepst á fyrsta ári af náttúrulegum orsökum og er talið að það hlutfall raskist lítið með veiðum.

Gunnar Th. Gunnarsson, 22.11.2012 kl. 00:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband