"Forsætisráðherra veruleikafirrtur eða heldur að við séum fávitar"

Fyrirsögnin kemur að þessu sinni frá Gissuri Sigurðssyni, hinum eiturhressa fréttamanni Bylgjunnar. Hann lét þessi orð falla í þættinum "Í Bítið" í morgun HÉR má hlusta á það sem Gissur hafði að segja um landflóttann vegna aðgerðarleysis ríkisstjórnarinnar.

Veruleikafirring, elliglöp eða hrein heimska, það er spurningin Errm

Stupid


mbl.is Næstmesta brottflutningsárið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE

HÚN VOGAR SÉR jafnvel að halda því fram, að hér sé mesti hagvöxtur í heimi!

HÚN VOGAR SÉR að segja að það sé m.a. vegna nýsköpunar í atvinnulífi!

Hún þegir um þá staðreynd, að aukinn hagvöxtur er mest vegna aukinna makríl-veiðiheimilda (þökk sé staðfestu Jóns Bjarnasonar) – sem sé vegna óvæntra uppgripa af náttúrlegum orsökum, þrátt fyrir arfaléleg, skattpínandi stjórnvöld.

Hún veit ekki ekki sinni, að hagvöxtur er samt langtum meiri í Rússlandi og Kína!!!

Og hvar var nú aftur Jón Sigurðsson fæddur ... ?

ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE, 14.12.2011 kl. 17:55

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Afsakaður, Gunnar minn, mér svall svo móður við að lesa þetta hjá þér, að gleymdi að logga mig út frá Þjóðarheiðursbloggi og inn aftur undir mínu nafni. En úr því sem komið er, geta menn bætt sér það upp með því að smella hér á vefslóð Þjóðarheiðurs og séð þar þrjá nýja Icesave-pistla í dag.

Jón Valur Jensson, 14.12.2011 kl. 17:59

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir innlitið, Jón Valur.

Annað atriði sem Jóhanna minnist heldur ekki á varðandi hagvöxtinn, er að hann er að töluverðum hluta einkaneysla, en ekki vöxtur í atvinnulífinu.

-

Aukin einkaneysla á sér skýringar í því að fjöldi fólks neitar að borga af lánum sínum eða er í einhverskonar frystingu og greiðsluaðlögun. Þetta fólk er að nota peninga sem það annars ekki hefði. Auk þessa er aukning í erlendum ferðamönnum sem skilar sér einnig í aukinni einkaneyslu.

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.12.2011 kl. 19:03

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Enginn vöxtur er í hinu almenna atvinnulífi, þar er samdráttur sem mun bíta okkur illilega og enn verr en nú á næstunni

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.12.2011 kl. 19:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband