"Það stefnir í þjóðarslys ef þetta fólk fær að halda áfram"

guðmólafssGuðmundur Ólafsson hagfræðingur ræddi um skattastefnu ríkisstjórnarinnar á Bylgjunni í gær og kom inn á Laffer-kúrfuna í ljósi skattheimtunnar á Íslandi. Fyrirsögn þessa pistils er frá Guðmundi komin úr viðtalinu sem má hlusta á HÉR

Flest erum við sammála um að ríkið þurfi skatttekjur. En skattahugmyndir vinstrimanna hafa alltaf gengið út á "því meira, því betra", og þá breytir engu þó "meira sé minna", bara ef hægt er að skattpína. Vinstrimenn segjast gera það til að ná fram launajöfnuði. Það sorglega er að þeim er slétt sama þó það þýði verri kjör fyrir þá verst settu, jöfnuður er töfraorðið.

Fyrir utan hinar skelfilegu afleiðingar skattastefnu ríkisstjórnarinnar á launakjör almennings, þýðir hún minni skatttekjur ríkissjóðs. Fyrir því liggja nokkrar ástæður.

  • Flókið skattkerfi er dýrara í rekstri
  • Flókið skattkerfi hvetur til skattsvika
  • Háir skattar hvetja til skattsvika
  • Háir skattar minnka veltu í þjóðfélaginu = minni skatttekjur
  • Háir skattar á t.d. áfengi, eykur smygl og heimabrugg
  • Minna svigrúm fyrir fyrirtæki að hækka laun
  • Minni ráðstöfunartekjur fólks = minni velta - minni einkaneysla

Ég hvet fólk til þess að kynna sér "Laffer-kúrfuna". Gúgglið það!

Ps. viðbót, Ég sá nýlega að talsmenn ríkisstjórnarinnar guma af því að einkaneysla sé að aukast. Ástæðan fyrir því er sú að þúsundir einstaklinga eru hættir að borga af húsnæðislánum sínum og bíða þess að verða bornir út af lánadrottni, sem í mörgum tilfellum er ríkið sjálft sem eigandi banka og/eða lánastofnunar.

Einnig hefur ríkisstjórnin logið því blákalt að þjóðinni að atvinnuleysi fari minnkandi, þegar staðreyndin er sú að atvinnulausum hefur fjölgað um rúmlega 400 manns á sl. 2 mánuðum, þrátt fyrir að ein og hálf fjölskylda flýi land á degi hverjum. Tæplega 19.000 manns væru á atvinnuleysisbótum í dag, í stað rúmlega 12.000, ef engin hefði flúið Norrænu velferðarstjórnina.


mbl.is Fjárhagsleg áhrif óljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hvert einasta orð hjá Lobba í þessu viðtali er satt og rétt.  Menn eru fyrir löngu búnir að sjá þetta en ráðamenn halda áfram að berja hausnum í steininn og einn LANDRÁÐAFYLKINGARMAÐURINN gekk meira að segja svo langt, hérna á blogginu, að segja að hann væri bara feginn að fólk væri að flýja land.  Maður er bara farinn að velta fyrir sér hvar í ósköpunum þetta endar???????????

Jóhann Elíasson, 13.12.2011 kl. 13:03

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Maður veit ekki hvort skal hlæja eða gráta  þetta fólk er með ólíkindum

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.12.2011 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband