Vistkvíðasjúklingar ráða ferðinni

Það má ekki leggja veg í gegnum svæði sem vaxið er kræklóttu kjarri.

Yfirgnævandi meirihluti fólksins sem málið varðar, finnst í lagi að vegur sé lagður í gegnum kjarrið, en "umhverfisvitringarnir" segjast vita betur. Svæðið er víst ómetanlegt og einstakt, að þeirra mati. Errm


mbl.is Gengu af fundi með Ögmundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ögmundur vill auka lýðræðið í sveitarfélögunum með kosningum um umdeild mál. En ríkisstjórnin er ekki hlynnt þannig lýðræði? Hver er skýringin á því?

Ögmundur var bara að skapa nauðsynlegt tækifæri fyrir þá kosningu sem hann er manna mest hlynntur, og vonandi lærir samstarfsflokkur hans í ríkisstjórninni eitthvað af þessu, sem felldi óbreytta tillögu hans í lok þingsins, um aukið vægi kosninga í sveitarfélögum um umdeild mál.

Ögmundur einn getur engu breytt, ef hann fær ekki stuðning á þingi fyrir auknu lýðræði almennings, til að setja þrýsting á klíkuhópana í bönkunum og lífeyrissjóðunum, sem trúa því raunverulega að þeir eigi peninga almennings, meðan almenningur sveltur og flýr land! 

Ber er hver að baki nema sér bróður eigi. Einstaklingur í ríkisstjórn getur engu breytt ef samráðherrar, þingið og þjóðin styður ekki við bakið á þeim sem hefur valdastöðu til að breyta.

Aukið lýðræði er eina leiðin út úr klíkupólitíkinni. Það verður að endurskoða tillöguna hans Ögmundar um að styrkja lýðræðið í sveitarfélögunum og þar með í landinu.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 20.9.2011 kl. 14:06

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hvað er svona merkilegt við þessar hríslur?????

Jóhann Elíasson, 20.9.2011 kl. 14:18

3 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Jóhann, ég myndi beina þessarri spurningu til Árna Finnssonar náttúruverndarformanns, sá hinn sami og klagaði okkur fyrir Bandaríkjamönnum vegna hvalveiða !

Kv., KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 20.9.2011 kl. 15:03

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Kristján, eru ekki til einhver lög yfir fólk sem krefst aðgerða ríkis yfir eigin þjóð, eins og Árni Finnsson gerði?????????????

Jóhann Elíasson, 20.9.2011 kl. 15:16

5 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Það ætti að bjóða Ögmundi í bíltúr frá Patreksfirði í Bjarkarlund í fljúgandi hálku.  Ætli það kæmi ekki svipur á kappann við að fara niður Ódrjúgshálsinn ofan í Djúpafjörð?  Hann yrði fljótur að samþykkja láglendisleið eftir þá ferð.

Sigríður Jósefsdóttir, 20.9.2011 kl. 16:19

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hvað ætli margir þeirra ofsatrúarmanna sem vilja vernda kjarrið, sama hvað,  hafi litið það augum?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 20.9.2011 kl. 23:36

7 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

https://www.facebook.com/?ref=home#!/photo.php?fbid=221r433194577267&set=a.221432471244006.55276.100001317658965&type=1&theater

Gerið svo vel, hér sjáið þið Teigsskóg (vonandi virkar hlekkurinn).  Eins og sjá má, þá eru landeigendur nú þegar búnir að leggja veg í gegnum skóginn.

Sigríður Jósefsdóttir, 21.9.2011 kl. 00:16

8 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Tenglarnir virka ekki.

Takk fyrir athugasemdirnar

Gunnar Th. Gunnarsson, 21.9.2011 kl. 09:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband