Það "Ofursnjóaði"

Í kvöld var svokallaður "Ofurmáni", en 19 ár eru síðan tunglið hefur verið jafn nálægt jörðu og þetta laugardagskvöld.

Hér á Reyðarfirði var hiti um 9 gráður á celsíus, kl. 13 í dag og engu líkara en vor væri í lofti og manni varð hugsað til lóunnar, sem gæti verið farin að láta sjá sig innan tveggja vikna.

hrim_022Um kl. 18 var hiti kominn niður fyrir frostmark og frá því um kl. 9 í kvöld, til miðnættis; "Ofursnjóaði" í logni og frost var orðið -4c.

Léttur púðursnjór lá yfir öllu og það var gaman að aka um götur í nótt, fram og til baka, götur sem voru jafnfallnar, ósnertum og ótrúlega hvítum, léttum snjó, ...og sjá förin eftir sig, á að giska 40 cm. djúp.

Snjókoman minnkaði hratt eftir miðnætti og um tvö leytið var hún að mestu hætt og frostið komið niður í -6 gráður. Sem betur fer var nánast logn, allt kvöldið og nóttina.

Ekki létti þó skýjahulunni svo sæist til mánans, en hún þynntist nægilega til þess, að merkilega bjart var, miðað við síðvetrarnótt þann 19. mars.

Æskuvinur minn, sem lést fyrir aldur fram aðeins 34 ára gamall, átti afmæli þennan dag.

En þetta var mikil sveifla í veðurfari.... já og eiginlega í lundarfari fólks í leiðinni,... á þessum rúmlega hálfa sólarhring. E.t.v. átti "Ofurmáninn" einhvern þátt í sveiflunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband