Fræg ummæli um fyrri Icesave samning

Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor og sérlegur "óháður álítsgjafi" á RUV og í Baugsmiðlunum, hefur ítrekað komið með álit sín af þessu tagi.

Þess má geta að hinn þjófótti og fyrrverandi fréttamaður á RUV, G. Pétur Matthíasson, er bróðir Þórólfs. G. Pétur ólmast á bloggi sínu í hatursáróðri gegn Sjálfstæðisflokknum.

Kl. 09.39 þann 17. febrúar, sendi hann forsetanum eitraðar pillur á bloggi sínu, þrem dögum áður en ljóst var hvort hann vísaði Icesave III til þjóðarinnar eða ekki. HÉR  

Hér að neðan er upptaka af samræðum sem Geir Haarde átti við G. Pétur. Viðtalinu var formlega lokið og átti því að sjálfsögðu ekki að birta. G. Pétur stal hins vegar upptökunni úr safni RUV og birti það á bloggsíðu sinni.

G. Pétur Matthíasson fékk alvarlegar ákúrur fyrir athæfi sitt í bréfi sem útvarpsstjóri sendi starfsfólki sjónvarpsins, dags. 25. nóv. 2008, en þar sagði:

"Nú hefur það því miður gerst að fyrrverandi fréttamaður RÚV hefur tekið ófrjálsri hendi upptöku sem hann sjálfur taldi ekki ástæðu til að nota á sínum tíma en frumbirtir nú á bloggsíðu sinni löngu síðar, - jafnvel bút þar sem augljóst má vera að viðmælandinn vissi ekki að upptaka væri í gangi.

Þetta er að mínu viti svo ómerkileg og óheiðarleg framganga að ekki verður við unað, - fyrir nú utan að brjóta á ýmsum hagsmunum RÚV, þ.m.t. eignarrétti og höfundarrétti. Ég hef því ákveðið að gefa viðkomandi sólarhrings frest til að skila þeim gögnum sem hann tók í heimildarleysi frá Ríkisútvarpinu og biðjast opinberlega afsökunar á framferði sínu. Að öðrum kosti verður málið afhent lögmanni RÚV til meðferðar."

Ekkert var gert í málinu og það lognaðist út af.

 


mbl.is Ekki stórvægileg áföll heldur kyrrstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband