Einn maður

Íslendingar eru vanir því að forsetaembættið sé upp á punt og þess vegna hafa margir efasemdir um réttmæti þess að halda úti þessu dýra eins manns embætti, þar á meðal ég.

En nú ber svo við að rödd forsetans er sú eina úr stjórnsýslunni, sem kemur málstað íslenska ríkisins á framfæri í útlöndum. Hver sá þetta fyrir? Woundering 

"Mállausa mannafælan", forsætisráðherraónefnan, Jóhanna Sigurðardóttir, er alls ófær um að tjá sig við erlenda fjölmiðla. Reyndar telja margir að þó hún gæti, þá vilji hún ekki halda málstað okkar á lofti erlendis. Hún er fyrst og fremst áhugasöm um að styggja ekki ESB í Icesave- málinu og koma samningum í höfn, "farsællega", til að að vinna sér inn prik í innlimunarferlinu sem nú þegar er hafið.


mbl.is Brown ætti að biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband