Brjálað að gera í bransanum

"Loftslagshysterían"er að ná nýjum hæðum þessa dagana.

Nú þegar fréttir berast af kuldum um víða veröld, meira að segja á Suðurhveli, þar sem nú er hásumar, þá hamast vísindamennirnir sem aldrei fyrr við að koma vátíðindum af hlýnandi loftslagi til skila.

Þeir eru auðvitað skíthræddir um að hinir djúpu ríkisvasar lokist á þá, ef engin er váin. Þess vegna dynja yfir okkur stanslausar fréttir af voðalegum atburðum sem í vændum eru. Einhverjir "vísindamenn"segja að Grænlandsjökull gæti horfið á 50 árum og sjávarborð hækki um 7 metra. En Dr. Hubbard segir það af og frá. Hans tímamörk eru 100-1000 ár. Woundering

Loftslags og veðurfræði er blómlegur bissness í dag, enda hefur ásókn í að læra fræðin, stóraukist á undanförnum árum. Hagfræði og viðskiptafræði er eitthvað svo "2007" í dag. Errm


mbl.is Grænlandsjökull bráðnar ört
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þetta eru dómsdagsspámenn 21. aldarinnar.  Hubbard telur að minnst 100 til 1.000 ár líði áður en jökullinn rýrni svo mjög að hann eigi sér ekki viðreisnar von. 

Hvað ætli spálíkanið segi Bretlandsjökull verði orðin stór eftir 1000 ár.

Magnús Sigurðsson, 4.1.2011 kl. 15:31

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Frá Ástralíu:

Nú hafa hlutirnir heldur betur snúist á hvolf...

The Quadrant Online:

Who are the climate denialists now?

by Walter Starck

January 2, 2011

In recent years anyone daring to question the imminent reality of catastrophic global warming has risked being labelled a denialist with implicit, and sometimes even explicit, reference to holocaust denial as well. Ironically, over the past year in the face of a cooling climate and collapsing scientific credibility, climate alarmists have themselves begun to increasingly express opinions that can only be seen as denialist...
...

Meira: http://www.quadrant.org.au/blogs/doomed-planet/2011/01/who-are-the-climate-denialists-now

Ágúst H Bjarnason, 4.1.2011 kl. 15:52

3 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ég veit ekki hvar menn hafa fundið sérfræðinga sem segja að Grænlandsjökull geti horfið eftir 50 ár. Snæfellsjökull gæti mögulega horfið eftir 50 ár. Sennilega er þó átt við „point of no return“.

Jöklar hafa nánast horfið á Bretlandseyjum undanfarin ár og kannski verður talað um Bretlandseyjaklasan eftir 1.000 ár þegar sjávarborð hefur hækkað.

Emil Hannes Valgeirsson, 4.1.2011 kl. 16:00

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir linkinn, Ágúst.

Magnað hvernig þeir klóruðu sig út úr tölvupóstshneikslinu.

Mér, fyrir minn hatt, finnst að "vísindamenn" með það "attitude" sem þessir menn sýndu, ekki vera sérlega trúverðugir.

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.1.2011 kl. 17:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband