Menn hafa verið dæmdir fyrir minna

Fólk hrópar eftir pólitískri ábyrgð og réttlæti.

Ég man ekki eftir skýrara og einfaldara dæmi um pólitískt klúður en "Svavars-samninginn", svokallaða. Ekki nóg með það að klúðrið sé skýrt (og dýrt), heldur lagði maðurinn sem treysti Svavari til verksins, Steingrímur J. Sigfússon, höfuð sitt að veði, í sjálfsánægjulegri vissu sinni um "glæsilegan samning!".

Mér sýnist fátt um varnir hjá sakborningi (Steingrími J. Sigfússyni) í máli ríkisins (fólksins) gegn honum.

Er ekki rétt að krossfesta Steingrím og leyfa Svavari og Indriða að hanga með? "...svona eins og honum til samlætis". (Svo gripið sé til frægrar tilvitnunar og samlíkingar Davíðs Oddssonar, varðandi sig og kollega sína í Seðlabankanum)

steingrímurogco

Hér vantar bara góðan "fótósjoppara", f.v. Indriði, Steingrímur og Svavar. Mér sýnist reyndar ekkert þurfa að "fótosjoppa" þennan lengst til hægri. Happy

(ISS tríóið)


mbl.is „Ég ber ábyrgð á Svavarsnefndinni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Það er mjög einfalt mál.

Þá Quislinga: Svavar Gestsson og (sérstaklega) Steingrím J. Sigfússon ásamt Jóhönnu Sigurðardóttur á að draga fyrir Landsdóm. 

Ef það var einhver ástæða til að draga Geir H.H., þá er nauðsyn að draga þá Svavar og Steingrím J.

Sérlög í Noregi voru sett vegna Quislings eftir föðurlandssvik hans gegn Norsku þjóðinni eftir seinni heimsstyrjöldina.  Hann var tekinn af lifi.

Ég er ekki að stinga uppá slíku gagnvart ISS tríóinu ásamt Jóhönnu. 

Hinsvegar Landsdóm.  Já.

- - -

Og veita Ólafi Ragnari Grímssyni Fálkaorðuna (af öllum mönnum - ég hélt að ég myndi aldrei láta svona út úr mér varðandi þann mann - en svona er að nú samt).  Jafnvel Stórriddarakrossinn (oj!).

Kveðja, Björn bóndi   

Sigurbjörn Friðriksson, 11.12.2010 kl. 20:40

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég er sammála hverju orði, Björn bóndi og ógeðslega fyndið þarna í restina 

Gunnar Th. Gunnarsson, 12.12.2010 kl. 21:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband