"takk fyrir að horfa.kv-ihj"

ingvi_hrafnÉg sendi að gamni mínu póst á inntv@inntv.is stílaðan á Ingva Hrafn Jónson, sjónvarpsstjóra og gerði að tillögu minni að stöðin hæfi vikulegar útsendingar á umræðuþætti sem skilaði því hlutverki, sem Silfri Egils hefði mistekist svo herfilega á undanförnum misserum.

Ég lét fylgja tillögunni að Hannes Hólmsteinn Gissurarson væri tilvalinn þáttastjóri, en honum væri vel treystandi til að fá ólík sjónarmið í þáttinn og með hann við stjórnvölinn væru fjörugar umræður tryggðar. Póstinn til Ingva Hrafns setti ég á bloggið, sjá HÉR

Svar hins háæruverðuga sjónvarpsstjóra var stutt og laggot:

"takk fyrir að horfa.kv-ihj"

Getur verið að Ingvi Hrafn standi í þeirri trú að kunningjaspjall hans á Hrafnaþingi, sé í samkeppni við Silfur Egils ? Woundering

Ps. Tillögunni um Hannes var slengt út í bríaríi. Það er örugglega til ungt, ferskt og vel lesið fólk þarna úti einhversstaðar, sem gæti skilað þáttastjórahlutverkinu með sóma. Ég held bara að umræðurnar yrðu svo asskoti skemmtilegar, ef Hannes fengi að blanda sér í þær. En það verður þó að vera af ákveðinni hógværð gagnvart viðmælendunum. Þeir verða að fá að vera í aðalhlutverkinu.


mbl.is Górilluöpum fjölgar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eðvarð Hlynur Sveinbjörnsson

Er Ingvi Hrafn Górilla? :)

Eðvarð Hlynur Sveinbjörnsson, 8.12.2010 kl. 09:32

2 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Eðvarð Hlynur;  Já, Ingvi Hrafn er górilla sem finnur vonda lykt af öllum sem eru í kringum hann.  Þess vegna snýr hann svona uppá nefið í sífellu.

(Nema að lyktin sé af honum sjálfum - svona górillulykt -)  Hvernig lykta górillur annars? 

Kveðja, Björn bóndi   

Sigurbjörn Friðriksson, 8.12.2010 kl. 10:20

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

 Mér fannst þessi fréttatenging ágæt hugmynd

Gunnar Th. Gunnarsson, 8.12.2010 kl. 13:58

4 Smámynd: Offari

mér finnst Hannes Hólmsteinn vera jafn leiðinlegur og Egill.

Offari, 8.12.2010 kl. 17:50

5 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Offari; Vertu nú ekki að móðga Egil.

Mbkv, Björn bóndi =:o)>

Sigurbjörn Friðriksson, 9.12.2010 kl. 17:29

6 identicon

Mér dettur helst í hug að Ingvi Hrafn hafi haldið að þú værir að atast í sér. Hugmynd þín um Hannes sem þáttastjórnanda í þætti á borð við Silfur Egils er á mörkum þess fáránlega. :)

Ófeigur (IP-tala skráð) 11.12.2010 kl. 00:39

7 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Álls ekki, Ófeigur, það yrði mjög skemmtilegt.

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.12.2010 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband