Frábærir listamenn

klövnÉg hefði viljað sitja á fremsta bekk í Háskólabíói í uppistandinu. Vonandi verður "showið" sýnt í heild sinni.

Ég elska Frank Hvam og Casper Christiansen InLove..... ég fíla húmor þeirra í botn. Frímann Gunnarsson er vaxandi karakter í höndum Gunnars Hansen. Jón Gnarr er ávalt óborganlegur og svo eru þarna einhverjir góðir sem maður hefur ekki heyrt í áður.

Ég hlakka mikið til að sjá þetta.


mbl.is Spéfuglar slógu upp veislu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Og fyrir hönd Stóra - Hrauns fjölskyldunnar mótmæli ég því af alefli að Gunnar Hansson leikari og fændi minn sé Hansen.

Gunnar er sonur Hans Kristjáns Árnasonar og Sigríðar Önnu Pálsdóttur dómkirkjuprests sem er dóttir Páls Ísólfssonar dómorganista og tónskálds.

Maðurinn á til ættgöfugra stórmenna að telja í allar áttir svo langt sem augað eygir!

Til nánari skýringar þá er Hans Kristján sá sem stofnaði Stöð 2 ásamt Jóni Óttari Ragnarssyni og einnig má nefna að hann ritaði viðtalsbókina við Gunnar Dal skáld og gaf hana út sjálfur.

Bróðir Hans Kristjáns er Einar Árnason hagfræðingur nýráðinn aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar ráðherra.

Kristján Einarsson framkvstj. SÍF föðurafi Hosa bauð sig fram á móti Hermanni Jónassyni í Strandasýslu eitt sinn að gamni sínu en tókst auðvitað ekki að fella risann. Kristján var mikill vinur Thorsbræðra svonefndra og jafnframt bróðir Sigurvins Einarssonar alþ.m Barðstrendinga en hann var nú reyndar Framsóknarmaður.

Mér hefur ekki tekist að finna hæð og þyngd Gunnars Hanssonar en mun reyna að birta þær upplýsingar eins fljótt og mér er unnt ásamt fleiri nauðsynlegum upplýsingum um manninn. 

Árni Gunnarsson, 30.9.2010 kl. 20:37

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hahah.. takk fyrir þetta, höfðingi. Þú bregst ekki

Ég reyndar vissi um föðurætt nafma míns, en þetta var bara meinleg innsláttarvilla. Ég vona að þú fyrirgefir mér

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.9.2010 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband