Ódauðlegt myndband

Myndbandið af þessu viðtali við Jón Gnarr, borgarstjóra, verður víðfrægt ef það verður þýtt og sett á youtube. Mér finnst þetta viðtal vera listrænt meistaraverk. Það er ekki hægt annað en elska þennan mann.

En þá er það pólitíkin..... Sleeping

Auðvitað væri það fínt ef Jóni borgarstjóra auðnaðist að sópa til sín góðum ráðgjöfum, hverjum á sínu sviði, svo úr yrði góð stjórnun. En því miður hefur Samfylkinngin sennilega tögl og haldir í því að benda Jóni og Besta flokknum á "réttu" ráðgjafana, en svo bætast e.t.v. fáeinir úr vina og kunningjahópi Besta flokksins á garðann.

Svo fær Jón einhvern lítinn sjóð til að veita úr til gæluverkefna sinna, svona einhverskonar litla minnisvarða um sig, t.d. litla sæta garða með lítilli tjörn með öndum á. Listaverk frá vinum og kunningjum verða keypt og sett upp hér og þar um bæinn, aðallega þó í 101...  og kannski líka í Breiðholtshverfinu sem hann ólst upp í.

Einhvern veginn er þetta ekki eins skemmtilegt og viðtalið... Errm


mbl.is „Ég er og verð óviðeigandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikta E

Gunnar myndir þú vilja hafa Jón Gnarr bæjarstjóra í bæjarfélaginu þínu ?

Ég held varla - hlustaðu á útsendingar frá fundum borgarstjórnar á þriðjudögum 99,8

Þá áttarðu þig fljótt á því hvernig Gnarristarnir eru sem borgarfulltrúar.

Benedikta E, 10.9.2010 kl. 12:03

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég hef aldrei verið hrifinn af Besta flokknum sem pólitísku afli og mér finnst fáránleg hugmynd að Jón Gnarr sé borgarstjóri.

-

En þetta viðtal er listaverk

Gunnar Th. Gunnarsson, 10.9.2010 kl. 16:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband