Er þarna tækifæri?

"Enginn er bróðir í annars leik".... eða "enginn er bróðir í öðrum leik", eins og Geiri í Gufunesi sagði í den. Íslenska þjóðin hefur fengið smjörþefinn af því í alþjóðlegum viðskiptum sínum.

Mörg gömul og gróin viðskiptasambönd vestur um haf eru til staðar á Íslandi. Það er auðvitað engin ástæða til að fórna þeim, en ef við viljum vera sannir kapitalistar þá eigum við auðvitað ekki að hafa rörsýn í vestur.

Hernaðarbandalagslaust smáríki, eyja í miðju N-Atlantshafi, milli austurs og vesturs og herlaust að auki, getur gert út á hlutleysi sitt. Sviss er ágætt dæmi um slíka tækifærismennsku, þó þeir hafi reyndar her.

Við herlaus.... þess þá heldur Woundering

Hvernig væri að við gerðumst sérvitringar á gulleyjunni okkar?

Það var mikil og djúp speki fólgin í nafngiftinni á landinu sem víkingarnir frá Noregi fundu forðum.


mbl.is Íhugi þjóðaratkvæði um NATO
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Vorum við ekki við NATO inngönguna 1949 fórnarlömb sömu aðferðafræðinnar og beitt var til að afla fylgis við innrásina í Írak. Blekkingum og vísvitandi rangfærslum og beinlínis lygum var mokað út uns björninn var unnin.

Trúir því einhver í alvöru núna að ef við hefðum ekki gengið í NATO og fengið Kanaherinn að við hefðum orðið fórnarlömb kommana?

OOooh hvernig læt ég, jú auðvitað trúir því enn ótrúlegur fjöldi manna, sálarheill þeirra veltur á þeirri trú, án hennar verður engin morgundagur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.9.2010 kl. 03:49

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég held að það hafi verið mjög eðlilegt hjá okkur á sínum tíma að ganga í NATO

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.9.2010 kl. 16:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband