Hverra eru hagsmunirnir?

Hvaða hagsmuni getur bandaríski erindrekinn haft af því að skálda upp þennan minnismiða?

Þetta ógætilega tal sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, er auðvitað hneisa og ríkisstjórnarflokkarnir vilja klóra yfir skítinn með því að segja að ekkert sé að marka minnisblaðið.

123-4


mbl.is Söguskýring bandaríska sendifulltrúans röng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er þekkt staðreynd að vinstri stjórnir hafa valdið verulegum pirringi í Votatúni. Lítið þarf til að Bandarísk stjórnvöld fari á límingunum þegar kommúnistar eru annarsvegar. Lítið hefur þurft til að þeir sjái þá í hverju horni.

Kommúnismi er afstætt hugtak hjá Bandaríkjamönnum og mjög frjálslega túlkað en auðvitað það versta hugsanlega af öllu mögulegu. T.d. telja Cheney og hans nónar að allir vinstra megin við þá séu kommar, sem væri þá sirka allt mannkyn.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.2.2010 kl. 15:25

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Nokkuð til í þessu hjá þér. Sjálfsagt væri hluti sjálfstæðismanna og þar með talinn ég sjálfur, stimplaður sem argasti kommúnisti af Cheney og félögum.

-

En það breytir því ekki að mér finnst ólíklegt að bandaríski erindrekinn skáldi upp minnismiðann

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.2.2010 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband