Sumarbústaður til leigu

Ferðalög innanlands hafa rokið upp vinsældalistann hjá Íslendingum eftir gengisþróunina undanfarin misseri. Nú er svo komið að slegist er um alla útleigða sumarbústaði, og það jafnvel utan "High season" tímabilsins.

Myndirnar hér að neðan eru af bústað sem systir mín á og hún hefur áhuga á að leigja hann þegar hún er ekki að nota hann sjálf. Bústaðurinn er í Biskupstungum í Árnessýslu og þaðan er stutt til Gullfoss, Geysis, Laugarvatns, Þingvalla, Flúða og Selfoss, svo eitthvað sé nefnt. Reykholt er í ca. þriggja kílómetra fjarlægð og þar er matvöruverslun og sundlaug. Skot og stangveiðimenn eru vel settir í þessari sveit.

Bústaðurinn er nýr (2008), 52 fermetrar að stærð,  auk svefnlofts með dýnur fyrir      4-6. Niðri er stofa og eldhús, bað og tvö svefnherbergi með hjónarúmi í öðru þeirra og tvær kojur í hinu. Stór verönd er við húsið og heitur pottur. Húsið stendur hátt í landinu og útsýnið er gott. Einhver hundruð metra eru í næstu bústaði.

Bústaðurinn er laus í útleigu til 11. júní í sumar og eftir 27. ágúst. Þeir sem hafa áhuga geta sent fyrirspurnir á totagun@gmail.com 

2

3

4

Í bústaðnum eru öll helstu þægindi s.s. þvottavél, uppþvottavél, örbylgjuofn, gasgrill, borðáhöld fyrir 12 manns, útvarp með CD og sjónvarp með DVD.

7

8

Dyrnar að heita pottinum og stiginn upp á svefnloftið

5

Hvað er betra en að skella sér í pottinn að loknum ævintýralegum degi?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Fallegur bústaður! Gangi ykkur vel!

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 11.2.2010 kl. 23:32

2 identicon

viltu segja mer hvað kostar að leiga i 1 viku? kv.

joanna (IP-tala skráð) 20.4.2010 kl. 17:54

3 identicon

Hvað kostar viku leiga og er laust fá næsta Mánudegi?

Garðar (IP-tala skráð) 13.8.2010 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband