Sendið Adolf Inga heim

adolfingiEini skandallinn í þessum leik, fyrir utan nýju (gömlu) reglurnar hjá dómurunum, var lýsing Adolfs Inga á leiknum. Það á að gefa Dolla litla rauða spjaldið fyrir svona skammarlega frammistöðu.

"Hvað ætlar Óli að gera núna!", sagði hann í gremjulegum tón, eftir að Ólafur Stefánsson hafði gert tvenn mistök í leiknum með stuttu millibili. Í viðtalinu eftir leik spurði hann Ólaf hvers vegna hann næði sér ekki á strik. Hverslags spurning er þetta eiginlega! Óli svarði snilldarlega og sagði að hann þyrfti að horfa á leikinn aftur, "Ég skoraði 7 mörk í leiknum, auk stoðsendinga. Hvað viltu eiginlega að ég geri? Skori 10 mörk í 9 skotum?!"

sync_swimAdolf Ingi hefur ekkert vit á handbolta og hefur aldrei haft. Hann á að einbeita sér að samkvæmisdönsum eða sundballett, líkt og fyrrum kollegi hans, Ingólfur Hannesson gerði. þar er hann á heimavelli..... þessi kelling GetLost

Þessi leikur skiptir sennilega engu máli í sambandi við milliriðlana. Yfirgnævandi lýkur eru á því að þetta jafntefli dugi okkur áfram. Til að svo verði ekki, þurfa Austurríkismenn og Serbar að gera jafntefli og við að tapa fyrir Dönum með sex mörkum eða meira.

Það er hins vegar bráðnauðsynlegt að vinna Dani á laugardaginn, ef við ætlum okkur í krossspilið í fjórðungsúrslitunum.


mbl.is Klúðruðu stigi í lokin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála

 http://www.youtube.com/watch?v=nUFBiFYCMdo

Alveg þroskaheftur gaur.

gunnar (IP-tala skráð) 21.1.2010 kl. 23:09

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Sammála. Þetta viðtal var ekki bara Adolf Inga til skammar heldur Stöð 1. Mannasiðir er lágmarks krafa í viðtölum við mennina sem leggja allt sem þeir eiga í þessa keppni og rúmlega það.

Þetta rifjar líka upp viðtalið við Snorra Stein eftir að vítið var varið.

Báðir svöruðu þeir eins og efni stóðu til.

Árni Gunnarsson, 21.1.2010 kl. 23:20

3 Smámynd: Andrés Kristjánsson

Já þetta er til skammar. Ég gat ekki hlustað á Íslensku lýsinguna, sem betur fer, en sá og heyrði viðtölin. Hvern telur hann sig vera að dæma?.

Þessi leikur mun að öllum líkindum ekki telja gegn okkur og því ber okkur að lyfta strákunum upp fyrir komandi átök gegn Dönum. Ef þessi leikur verður til þess að við svíðum Dani, þá er tilgangnum náð og rúmlega það.

Andrés Kristjánsson, 21.1.2010 kl. 23:31

4 identicon

Nei þetta er smá rétt hjá Dolla. Einn besti leikmaður heims skeit þarna á sig í lokin. Ég meina skref?!!!

Hvað tók Óli annars mörg skot? (það hefur allt að segja varðandi frammistöðuna)

p.s. Fylgist lítið með, horfði aðeins á lok leiksins, hverjar eru nýju (gömlu) reglurnar hjá dómurunum?

Ari (IP-tala skráð) 22.1.2010 kl. 00:33

5 identicon

Það á að senda Adolf Inga heim í hvelli - því miður hefur hann ekkert

vit á handbolta.

ÁFRAM ÍSLAND

GB (IP-tala skráð) 22.1.2010 kl. 00:57

6 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Vildi óska þess að hægt væri að skrúfa niður í íþróttafréttamönnum til að geta notið þess að horfa á leik.

Benedikt Halldórsson, 22.1.2010 kl. 02:19

7 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ari, ef fjölmiðlaumræðan á Íslandi á að leggja áherslu á niðurrifssstarfsemi, þá höfum við ekki rétta á að kalla okkur "handboltaþjóð".

Ég er ekki að segja að ekki megi gagnrýna liðið eða einstaka leikmenn fyrir slaka frammistöðu, en þá verður sú gagnrýni að hafa einhverja innsýn í handboltann. Menn verða að hafa vit á því sem verið er að gagnrýna.

-

Í þessum leik gerði Óli fleiri mistök en hann gerir að meðaltali í leik og þar af ein á örlagaríku augnabliki. En Óli gerði líka fleiri mörk í leiknum en hann hefur gert að meðaltali landsleik, auk stoðsendinga o.fl.

-

Varðandi skrefið sem dæmt var á hann í lokinn.... ég held að þetta hafi ekki verið skref. Óli hikaði aðeins með boltan, en það má

Gunnar Th. Gunnarsson, 22.1.2010 kl. 07:00

8 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Annað dæmi um lélega fagmennsku Adolfs var þegar hann spurði Snorra Stein eftir Serbaleikinn, bjánalegra og barnalegra spurninga um vítakastið, nokkrum andartökum eftir að leiknum lauk.

-

"Hvað skeði í vítinu?"!!!....

Hvernig svar bjóst mannvitsbrekkan við að fá?

Gunnar Th. Gunnarsson, 22.1.2010 kl. 07:06

9 identicon

Ég skil bara ekki afhverju það er ekki búið að reka þennan sauð.

Þetta er RÚV til skammar

Gunnlaugur (IP-tala skráð) 22.1.2010 kl. 14:27

10 identicon

Nú er ég forvitin um þessi viðtöl.

Vitiði hvar er hægt að nálgast þau?

snorri (IP-tala skráð) 22.1.2010 kl. 23:57

11 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Snorri, það ætti að vera hægt að nálgast þessi viðtöl á RUV.is, en sennilega mun stofnunin reyna að fela þetta af skömm.

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.1.2010 kl. 04:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband