Ferðalög | 2.4.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
... ekki þó sem fangi.
Bloggið hér á undan, ásamt fullt af myndum, er frá heimsókn minni í Alcatraz fangelsið fyrir nokkrum dögum.
![]() |
Fangelsinu lokað á síðustu fangaeyjunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | 1.4.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í 6 daga ferð minni með Skólastjórafélagi Austurlands til San Francisco á dögunum, þar sem konan mín sat ráðstefnu með 9000 kennurum frá 45 löndum, fór hópurinn frá Austurlandi í nokkrar skoðunarferðir. 21 var í austfirska hópnum, þar af tæplega helmingur makar.
Ein skoðunarferðin var út í eyjuna Alcatraz þar sem samnefnt og hið alræmda fangelsi var, frá árinu 1934-1963. Reyndar var þar áður herfangelsi, 1859-1933.
Eyjan er lítil, eða aðeins 8,9 hektarar og er ekki nema 2 km. frá landi. Straumar eru hins vegar miklir í kringum eyjuna og þegar fyrstu fangarnir komu til eyjarinnar, var þeim sagt að vonlaust væri fyrir þá að reyna að flýja með því að synda í land.
"Go ahead, swim",var sagt við þá með brosi á vör. Auk þess var föngunum sagt að hvítir mannætuhákarlar væru allsstaðar á sveimi í kringum eyjuna, en það var reyndar lygi til að fæla fanga frá flóttatilraunum. Alcatrac er of innarlega í San Francisco flóanum og sjórinn því ekki nægjanlega saltur á þeim slóðum fyrir hákarlana.
Skólastjórarnir Hilmar Sigurjónsson, Eskifirði og Ásta Ásgeirsdóttir, Reyðarfirði, í ferjunni á leið út í Alcatraz. Golden Gate brúin í baksýn.
Alcatraz nálgast. Neðra húsið er móttökubygging og fyrir ofan er fangelsið.
Tekið er á móti gestum með stuttri en skemmtilegri ræðu þar sem farið er yfir hvað má og ekki má. Það er t.d. bannað að reykja og borða mat á eyjunni, nema á litlu afmörkuðu svæði við bryggjuna. Drykkir voru einnig bannaðir, nema blávatn.
Allt var í niðurníðslu á eyjunni frá því fangelsinu var lokað árið 1963 þar til ákveðið var að gera þennan sögulega stað að safni 1972.
Árið 1969 "hertóku" indíánar eyjuna og hugðust þeir eigna sér hana. Hernám þeirra stóð í um tvö ár og markaði þessi aðgerð tímamót í réttindabaráttu indíána í N-Ameríku.
Gönguleiðin frá bryggjunni að fangelsinu liggur í krákustígum upp "The rock". Húsin fyrir miðri mynd eru m.a. íbúðir fangavarða, en hluti þeirra bjó á eyjunni með fjölskyldum sínum.
"Ef þú brýtur reglurnar (lögin) þá ferðu í fangelsi. Ef þú brýtur fangelsisreglurnar, ferðu í Alcatraz" Af þeim 1545 föngum sem sátu í Alcatraz á þeim 29 árum sem fangelsið starfaði, voru einungis um 70 þeirra dæmdir beint til vistunar þar. Þangað voru sendir sérlega hættulegir menn og þeir sem höfðu verið til vandræða í öðrum fangelsum.
Skoðunarferðin í fangelsinu hófst í "sturtuklefanum". Þar fengum við leiðsögumann í gegnum heyrnartól og tæki sem hægt var að setja á "pásu", spóla til baka o.s.f.v.
Fjórir fangaverðir, ásamt þessum fjórum fyrrv. föngum, töluðu á upptökunum í tækinu sem við fengum og leiddu okkur í allan sannleikan um vistina á þessum hræðilega stað.
Einn af þremur göngum fangelsisins. Einn þeirra var kallaður "Broadway". Við enda ganganna var þvergangur sem kallaður var "Times Square".
Klefarnir eru skelfilega litlir, 9x6 fet á kant.
Þegar fangar komu til Alcatraz, fengu þeir fangelsisreglurnar á blaði; "Regulations for inmates, U.S.P., Alcatraz". Þær voru í 53 númeruðum liðum og föngum bar að hafa blaðið uppi við í klefanum öllum stundum.
"Regla #5, "Þú hefur rétt á mat, klæðnaði, húsaskjóli og læknisþjónustu. Allt annað sem þú færð eru forréttindi", segir okkur margt um vistina þarna. Fangelsun í Alcatraz var refsivist, en ekki betrunarvist.
Þeir fangar sem höguðu sér óaðfinnanlega, fengu að fara út í fangelsisgarðinn, einu sinni á dag í einn klukkutíma.
Útsýnið frá garðinum. Í baksýn er Golden Gate brúin sem liggur til ríkasta sveitarfélags Bandaríkjanna, Marin County. Sansolito heitir bærinn sem sést hægra megin. Örlítið lengra, í hvarfi við hrygginn, er annar bær í sama sveitarfélagi sem heitir Larkspur, en þangað áttum við eftir að fara í afar áhugaverða skólaheimsókn. Blogga um það síðar.
Tröppurnar niður í fangelsisgarðinn. Þessi þrep hefur margt illmennið stigið.
Frægir fangar í Alcatraz. Al Capone, Gerge "Machine Gun" Kelly, Arthur "Doc" Barker, Alvin "Creepy Karpis" Karpavicz, Robert "The Birdman" Stroud, Ellisworth "Bumpy" Johnson, Meyer "Mickey" Cohen.
"Bardaginn um Alcatraz, 2.-4. maí, 1946". Flóttatilraun 6 fanga sem endaði með skelfilegu blóðbaði. Þegar fangarnir áttuðu sig á því að flóttatilraunin var að mistakast, þá skutu þeir varnarlausa fangaverði sem þeir höfðu afvopnað og læst inni í einum klefanum.
Stækka má allar myndirnar með því að smella þrisvar sinnum á þær. Þá er hægt að lesa það sem stendur á þessu skilti.
Klefinn sem fangaverðirnir voru skotnir með köldu blóði.
Önnur fræg flóttatilraun var gerð 11. júní árið 1962, þegar þremur mönnum tókst á löngum tíma að skrapa gat í gegnum þykkan steinveggin á klefa sínum. Tveir mannanna voru bræður.
Þegar í gegnum gatið var komið, lá leiðin eftir þessum þrönga lagnagangi og úr honum komust þeir upp á þak fangelsisins. Þaðan var greið leið til sjávar
Alls reyndu 36 fangar flótta, í 14 tilraunum. Allir náðust, drukknuðu eða voru skotnir á flóttanum, utan þessara þriggja, en aldrei spurðist til þeirra meir, hvorki lífs né liðinna. Þeir höfðu lagst í spænskunám í fangelsinu og orðrómur var um að þeir ætluðu sér til S-Ameríku eftir flóttann.
Fræg bíómynd var gerð um flóttann árið 1979, með Clint Eastwood í aðalhlutverki.
Hilmar Sigurjónsson, skólastjóri á Eskifirði, andaktugur á svip að hlusta á hljóðupptökuna í bókasafni fangelsisins, en þar fengu "þægu" fangarnir aðgang. Spænskunemarnir hafa væntanlega sótt kennslugögn þaðan.
Þessi mynd er tekin út um glugga stjórnstöðvar fangelsisins. Eins og sést er ekki langt til "frelsisins".
"Bay Bridge" sést vinstra megin á myndinni. Hún er meira mannvirki en Golden Gate brúin, þó hvorki sé hún eins fræg né falleg, enda mun yngri og ekki sama verkfræðiafrekið og sú gamla þótti á sínum tíma, en hún var byggð á fjórða áratug síðustu aldar.
Ferðalög | 1.4.2011 (breytt kl. 13:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég var í San Francisco í vikunni og rakst á þessa fataverslun.
![]() |
Ósiðlegt eða fyndið nafn á hamborgarastað? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | 31.3.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)

![]() |
Einnig brotleg 2007 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 25.3.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Andstaða forstjóra Fangelsismálastofnunar við að nýta vinnubúðirnar á Reyðarfirði til vistunar fanga, bendir til þess að einhverskonar pólitík ráði för, eða að að maðurinn sé algjörlega ófær um að taka faglega og málefnalega afstöðu til hugmyndarinnar.
Vinnubúðirnar eru ekki gámabyggð, því þar hafa aldrei verið notaðir gámar undir íbúðir. Vinnubúðirnar voru byggðar með það í huga að þar ætti fólk heima í 2-3 ár. Fullkomin aðstaða er þar til líkamsræktar og afþreyingar. Hreinlætisaðstaða og annað sem fólk með fullt frelsi þarf að hafa (samkvæmt mannréttindum) er þar til staðar.
Páll E. Winkel segir að "fangar verði ekki vistaðir sem búpeningur", og samkvæmt því er það mannréttindabrot að vista fanga í vinnubúðunum. Er föngum gert hærra undir höfði í mannréttindamálum, en vinnandi fólki?
Og hvað er "óhagkvæmt" við að nýta þessa aðstöðu í brýnni neyð í fangelsismálum? Forstjórinn segir að "fangar fái sumir börn sín reglulega í heimsókn og það yrði tímafrekt og dýrt fyrir barnaverndaryfirvöld að flytja börn út á land til að hitta foreldra sína undir eftirliti."
En hvað þá með fanga af landsbyggðinni? Er ekki dýrt að flytja þeirra börn suður í heimsóknir?
Annars gekk þessi "fangabúðahugmynd" á Reyðarfirði út á það, að þar yrðu vistaðir skammtíma fangar, þ.e. fólk sem hefði verið dæmt til 1-3 mánaða fangavistar og alls ekki fólk með alvarlegan glæpaferil að baki. Ef hægt væri að leysa þeirra mál með vistun í vel búnum vinnubúðum, þá færi stórt skarð úr "biðlistanum".
Ég er ekki viss um að fólk sem þarf að dvelja um tiltölulega skamma hríð á Reyðarfirði, yrði baggi á barnaverndaryfirvöldum, vegna flutninga barna sinna til þeirra. Raunar efast ég stórlega um það.
![]() |
Verksmiðjur, gámar og ísbrjótar duga ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | 25.3.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þessi mynd er tekin af Gunnari B. Ólafssyni, áhugaljósmyndara á Reyðarfirði. Gunni Baddi, eins og hann er gjarnan nefndur, er lunkinn ljósmyndari og á facebook síðu hans má sjá margar athyglisverðar myndir.
Horft inn í botn Reyðarfjarðar, Andapollurinn í forgrunni.
Bloggar | 21.3.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ekki styð ég einræðisherrann Gaddafi, svo því sé haldið til haga. En hvað vitum við um uppreisnarmennina? Fyrir hvað standa þeir?
Ég er ekki viss um að hrein lýðræðisást stjórni þeim öllum.
![]() |
Árásir byggðar á misskilningi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | 20.3.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
"Brjóst eiga að vera u.þ.b. svona stór" sagði Hugo Chaves í viðtali
![]() |
Chavez gegn brjóstastækkunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 19.3.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.7.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 947234
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Bernskutengd, hverfislæg, skynræn og sjónræn upplifun sjálfstæðis
- Heilbrigðisyfirvöld á Gaza eru Hamas-hryðjuvekasamtökin.
- Hefur varla mætt
- Colbert tapaði 50 milljón dollurum á ári. Einhvernvegin.
- Svífur yfir nefndinni, mörflugan ljós
- Samsæriskenning dagsins - 20250719
- Danskir glæpir: Olsengengið og Loyal to Familia
- Aðildin að ESB er komin á dagskrá
- Gegn aftökugleði tíðarandans !
- Sleppir ekki takinu
Í kvöld var svokallaður "Ofurmáni", en 19 ár eru síðan tunglið hefur verið jafn nálægt jörðu og þetta laugardagskvöld.
Hér á Reyðarfirði var hiti um 9 gráður á celsíus, kl. 13 í dag og engu líkara en vor væri í lofti og manni varð hugsað til lóunnar, sem gæti verið farin að láta sjá sig innan tveggja vikna.
Léttur púðursnjór lá yfir öllu og það var gaman að aka um götur í nótt, fram og til baka, götur sem voru jafnfallnar, ósnertum og ótrúlega hvítum, léttum snjó, ...og sjá förin eftir sig, á að giska 40 cm. djúp.
Snjókoman minnkaði hratt eftir miðnætti og um tvö leytið var hún að mestu hætt og frostið komið niður í -6 gráður. Sem betur fer var nánast logn, allt kvöldið og nóttina.
Ekki létti þó skýjahulunni svo sæist til mánans, en hún þynntist nægilega til þess, að merkilega bjart var, miðað við síðvetrarnótt þann 19. mars.
Æskuvinur minn, sem lést fyrir aldur fram aðeins 34 ára gamall, átti afmæli þennan dag.
En þetta var mikil sveifla í veðurfari.... já og eiginlega í lundarfari fólks í leiðinni,... á þessum rúmlega hálfa sólarhring. E.t.v. átti "Ofurmáninn" einhvern þátt í sveiflunni.