"Svo virðist sem tekist hafi að höfða til samvisku þjófsins sem skilaði plöntunum í gær."... segir í greininni sem bloggið er tengt við.
Maður sem ekur um á rándýrum lúxusjeppa... stelandi blómum....
Ég kaupi ekki iðrun hans. Hann var staðinn að verki og kom skríðandi á hnjánum.
![]() |
Lúxusjeppaeigandi skilaði blómum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sakamál | 27.4.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Norðmenn og Kanadamenn höfðu fasta viðveru með flugsveitir sínar á Reyðarfirði lengi vel og einn af flugmönnum norskrar sveitar á Reyðarfirði um tíma átti kærustu í Reykjavík sem hann kynntist þegar flugsveit hans hafði bækistöð í Skerjafirðinum.
Þessi ungi og myndarlegi norski flugmaður hét Oswald Heggeseth og kærastan hans varð síðar eiginkona hans, Frú Geirlaug Heggeseth og flutti hún með eiginmanni sínum til Noregs að stríðinu loknu. Geirlaug (Einarsdóttir) Heggeseth var föðursystir undirritaðs, en hún lést fyrir fáeinum dögum í hárri elli í Noregi.
HÉR er fróðleiksmoli um hersetuna á Reyðarfirði.
![]() |
70 ár frá stofnun norsku flugsveitarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 26.4.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Reykvískir blaðamenn eru stundum óttalega sjálflægir þegar þeir fjalla um veður.
Þó meirihluti íbúa landsins búi á SV-horninu, þá eru þó nokkrir "landsmenn" á víð og dreif um landið. Á Austurlandi hefur verið fínasta vorveður mest allan apríl og gróandinn er 2-3 vikum á undan, ef miðað er við meðaltalið. Jafnvel 3-4 vikum á unda, ef miðað er við allra síðustu ár.
Þessi farfuglahópur gæddi sér á kræsingum á leirunni fyrir neðan Andapollinn á Reyðarfirði í gær. Fallegur fugl sem minnir dálítið á spóa en er þó litfegurri og heldur minni.
Getraun: Hvaða heitir þessi fuglategund?
![]() |
Útlit fyrir batnandi veður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | 26.4.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Framhald af skólaheimsóknarbloggi til Larkspur.
Aðeins örfáir kílómetrar eru á milli smábæjanna Larkspur og Sausolito í Marin sýslu. Eftir skólaheimsóknina var ákveðið að spóka sig aðeins um í Sausolito.
Aðeins verið að átta sig á staðháttum.
"Down town" Sausolito.
California var upphaflega spænsk nýlenda en tilheyrði síðar Mexíkó þar til fylkið varð hluti USA um miðja 19. öld. Spænskra áhrifa gætir víða í fylkinu, t.d. í staðarnöfnum og í arkitektúr, eins og sjá má á þessari mynd.
Gengið með ströndinni og svipast um eftir veitingastað. Bláa húsið framundan varð fyrir valinu.
Að sjálfsögðu borðuðum við úti í góða veðrinu á þessum huggulega stað.
Þrátt fyrir að ég hafi ferðast nokkuð mikið og þyki gott að borða, hef ég aldrei fengið mér risa-humar. Þegar ég sá hann á matseðlinum, stóðst ég ekki mátið. Raunar var hann ekkert svo stór... hálfgerður "mini-risa-humar" En hann var ljómandi góður.
Þó San Francisco svæðið sé þekkt fyrir góða sjávarréttaveitingastaði, þá er humar í sjálfu sér ekki í þeim pakka, því hann kemur frá austurströndinni. Aðall vesturstrandarinnar er skelfiskur.
Tekið hraustlega til matar síns. Þorsteini Arasyni, skólastjóra á Seyðisfirði, líkaði flatfiskurinn vel.
Útsýnið var flott frá veitingastaðnum. Fyrir miðri mynd má sjá Alcatraz bera í Bay Bridge. Miðbær San Francisco til hægri.
"Zoomið" í botni, 200 mm.
Að loknum indælum miðdegisverði.
Úlallala!... sælgætisbúð
Sælgæti... og mikið af því, að hætti Ameríkana
Má til með að láta þessa flakka með
Þarna var mikið af litlum sætum verslunum. Þetta er heilsárs jólaverslun og margt geysilega fallegt þarna inni.
Þessi var að gifta sig og stillti sér upp fyrir mig
Skólastjórinn og aðstoðarskólastjórinn á Eskifirði, glaðir í lund, í mini-bussinum á leið til baka í ferjuna.
Húsnæði er mjög dýrt í Sausolito og Larkspur og sennilega í sýslunni allri. Bílstjórinn okkar sagði að leiguverð á tveggja herbergja íbúðum í húsunum í hlíðinni væri 2.500$ á mánuði (tæpar 300 þúsund kr.)
Bílstjórinn kom frá Króatíu fyrir 10 árum síðan. Ég spurði hann hvort ekki hefði verið erfitt fyrir hann að fá atvinnuleyfi. Hann sagðist hafa unnið "Græna kortið" í lotteríi.
Ennþá var smá tími til að ná ferjunni til baka og bílstjórinn tók krók og sýndi okkur bryggjuhverfi. Húsin er lítil en rándýr... ef við hefðum áhuga á að kaupa. Bestu húsin kosta 500.000 dollara, eða um 55 millur.
Ánægjulegri skólaheimsókn að ljúka. Gott að tilla sér aðeins meðan beðið er eftir ferjunni.
Hinn hraðskreiði farkostur okkar.
Ferðalög | 26.4.2011 (breytt kl. 14:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Maður slasaðis mjög alvarlega í vélsleðaslysi í Reyðarfirði á laugardaginn, sjá hér
Um tvo klukkutíma tók að koma manninum í sjúkrabíl og tæpan klukkutíma í viðbót að koma honum í heilsugæsluna á Egilsstöðum. Ljóst var strax að manninn þyrfti að flytja suður til Reykjavíkur í aðgerð, því annars hefði ekki verið farið með hann til Egilsstaða, heldur á fjórðungssjúkrahúsið á Norðfirði.
Maður spyr sig; afhverju var þyrla Landhelgisgæslunnar ekki kölluð út til að sækja mannin á slysstað?
Þyrlan er kölluð út til þess að ná í mann í nágrenni Reykjavíkur, vegna hugsanlegs fótbrots! Hvað er eiginlega í gangi?
![]() |
Fluttur með þyrlu á sjúkrahús |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | 25.4.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Smá viðbót við skólaheimsóknarbloggið.
Skólastjórinn Tom Drescher, sem var leiðsögumaður okkar um skólann, fór með okkur inn í kennslustofu sem var afar vel tæknilega búin.
Í kennslustofunni voru stórir flatskjáir á veggjum og stórt tjald fyrir skjávarpa. 30 fartölvur voru svo til afnota fyrir nemendur.
Stefán Már Guðmundsson, aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Reyðarfjarðar.
En þrátt fyrir alla nýjustu tölvu og kennslutækni, þá er engin ástæða til að fleygja gömlum en notadrjúgum verkfærum. Krítar og tússtöflur standa enn fyrir sínu og þær eru aldrei langt undan.
"Powerpoint presentation" hefur tekið öll völd á flestum fyrirlestrar og kynningarfundum. Sumir segja að þessi aðferð sé ofnotuð í dag og varla að nokkur maður geti orðið tjáð sig við hóp fólks án þess að nota Powerpoint.
"If you have to use Powerpoint.... you have no point", sagði einn kennarinn okkur ökukennaranemum í Kennaraháskólanum, á léttum nótum.
Við ökukennaranemarnir þurftum að skila verkefnum reglulega og flytja kynningu á þeim. Allir notuðu Powerpoint í kynningunni, alltaf... utan einn neminn sem var kennaramenntuð kona. Hún sagði í upphafi kynningar sinnar á verkefninu, að hún ætlaði ekki að nota Powerpoint í þetta sinn, heldur aðra aðferð sem héti "Krít og kjaftur". Svo tók hún upp krít, gekk að krítartöflunni og kynnti verkefni sitt með glans.
Menntun og skóli | 25.4.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þegar komið var í land í Larkspur, tók á móti okkur yfirmaður menntamála í sýslunni. Hann leiddi okkur í halarófu að bílaplaninu við bryggju-terminalinn, en þar biðu okkar tveir mini-bussar sem óku með hópinn rakleiðis til Tamalpais High School. Skólinn ber nafn hæsta fjalls Marin County; "Tamalpais"(785 m.) Nafnið er komið frá frumbyggjum sýslunnaar, Miwok indíánum.
Ef skólastjórnendur, kennarar og annað starfsfólk skóla hér á Íslandi og þó víðar væri leitað, myndu teikna upp og ímynda sér hinn fullkomna skóla, með umhverfi og öllu tilheyrandi, þá yrði útkoman ekki flottari en Tamalpais Union High School. Þetta er sannkallaður "Fantasy School" og það sem meira er, þetta er almenningsskóli, ekki einkaskóli með rándýrum skólagjöldum.
Tvennt er það helst sem gerir það að verkum að skólarnir í Marin County eru eins vel búnir og raun ber vitni. Í fyrsta lagi eru meðaltekjur fólks í sýslunni háar og það skilar sér auðvitað í "sýslukassann". Í öðru lagi eru viðhorf íbúanna til menntunarmála afar jákvæð og Tam High Foundation , sem tekur á móti styrkjum og frjálsum framlögum frá einstaklingum og fyrirtækjum, nýtur góðs af því.
Skólastjórinn, Tom Drescher, (í hvítu skyrtunni fyrir miðri mynd) leiddi skólastjórnendur á Austurlandi í allan sannleika um skólann. Yfirmaður menntamála sýslunnar er lengst til hægri.
Hópurinn við aðalinngang skólans.
Snyrtimennska og flott hönnun er aðalsmerki hins sýnilega skóla. Innviðirnir, þ.e. skólastarfið sjálft er sömuleiðis aðdáunarvert. Skólinn samanstendur af nokkrum byggingum og álmum frá mismunandi tímum.
Miðsvæðið á "campusnum"
Hér gengur austfirski hópurinn inn í leiklistarálmuna. Öll valfög, s.s. leiklist, myndlist, tónlist, íþróttir o.s.f.v. eru gjaldfrjáls. Allir í skólanum hafa jafna möguleika til náms, óháð stétt og stöðu.
Hópurinn var beðinn um að læðast og hafa algjört hljóð, því æfing var í fullum gangi í "leikhúsinu".
Eitt af valfögum við skólann er bifvélavirkjun. Einnig eru undirbúningskúrsar fyrir lögfræði í skólanum o.fl.
Umsjónarmaður vélvirkjadeildarinnar er þessi kona í rauðu skyrtunni. Hún er hámenntuð og með margar háskólagráður í faginu og hefur m.a. unnið hjá NASA, Geimferðastofnun Bandaríkjanna. "Menntamálaráðherrann"í Marin County, í hvítu skyrtunni.
Það hafði lengi verið draumur kennarans að fá gamlan "alvöru" klassískan amerískan kagga í kennslustofuna. Sá draumur hafði nýlega ræst þegar við komum í heimsókn. Mig minnir að þetta sé Mustang ´69.
Aðföngin (bílarnir) eru gjarnan í eigu nemenda eða foreldra þeirra, eða kennara við skólann, sem fá þá viðgerð og viðhald frítt en borga kostnað við varahluti. Sömuleiðis gefst eldri borgurum í Larkspur kostur á að koma með bíla sína til viðgerðar og margir nýta sér það.
Skólastjórinn með fyrirlestur við eina álmuna.
Aðstaða til íþróttaiðkunar í skólanum er ótrúlega flott. Það hefur skilað sér í verðlaunaliðum m.a. í sundi, körfubolta, ruðningi og fótbolta. (Soccer)
Hinar ýmsu byggingar og álmur á skólalóðinni, bera nöfn fyrrum kennara skólans sem þóttu skara fram úr. Aðalbyggingin heitir t.d. "Wood Hall", í höfuð fyrsta skólastjórans, en skólinn var stofnaður árið 1908. Íþróttahúsið heitir "Gustafsson´s Gym"(Gus Gym).
Við fengum að kíkja inn í nokkrar kennslustofur. Eðlis og efnafræði.
Náttúrufræði.
Í tónlistardeildinni höfðu nemendur smíðað ýmis hljóðfæri á frumlegan hátt. Hér eru tvær gerðir af strengjahljóðfærum.
Hljómkassinn á þessum "gítar" er þvottabali!
Frímínútur.
Mötuneytið. Mikil áhersla er lögð á holla og góða fæðu.
Minningarskjöldur á aðalbyggingu skólans, um fyrrum nemendur sem féllu í Seinni heimsstyrjöldinni, en þeir voru 55 talsins. Velunnarar skólans gáfu skjöldinn skömmu eftir stríðið, ásamt nýrri skólaklukku, sem sést á efstu myndinni í þessu bloggi.
Þessi skólaheimsókn var virkilega ánægjuleg. Þarna sáum við rjómann... með skreytingu, á bandarískum "High School". Skólastjórinn sagði okkur ítrekað að þetta væri alls ekki dæmigerður bandarískur skóli og í raun væru skólarnir í Larkspur, einstakir á bandaríska vísu, fyrir gæði, aðstöðu og metnað,... og velvilja og örlæti íbúanna í bænum.
Að heimsókninni lokinni, höfðum við rúma tvo tíma til að skoða okkur um í sýslunni og ferðinni var heitið til nágrannabæjarins Sausalito, sem er í um 6 km. fjarlægð frá Larkspur. Blogga um það síðar.
Larkspur er efst í vinstra horninu
Ferðalög | 24.4.2011 (breytt 25.4.2011 kl. 01:04) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Í ráðstefnuferð Skólastjórafélags Austurlands til San Francisco, var m.a. farið í skólaheimsókn til Larkspur í Marin County. Larkspur er um 12.000 manna bær en í sýslunni allri búa um 250.000 manns. Golden Gate brúin liggur til Marin County, sem er 5. ríkasta sveitarfélag Bandaríkjanna.
Ákveðið var að taka ferju yfir til Larkspur og var siglingin afar ánægjuleg.
Ferjuhöfnin er við enda Market Street , í um 15-20 mínútna göngufæri frá Union Square . Píramídalagaður skýjakljúfurinn, Transamerica Pyramid hægra megin á myndinni, olli miklum deilum þegar hann var byggður 1969-1972. Mörgum þótti hann ljótur og úr takti við aðrar byggingar í miðborginni. Í dag eru íbúar borgarinnar stoltir af honum, einmitt fyrir það að byggingin er öðruvísi og einstök. Svona getur sýn fólks og smekkur á umhverfi sitt, breyst í tímanns rás.
Ferjan var hraðskreið og við giskuðum á að við værum á 25-30 mílna hraða. Miðborgin og Bay Bridge í baksýn. Dagsumferð um brúna er um 270.000 bílar!
Golden Gate brúin, Marin County-megin. Alcatraz er hægra megin.
Útsýnið á siglingunni var fallegt og ekki spillti veðrið.
Þegar siglt er inn í höfnina í Larkspur, blasir eitt frægasta og stærsta fangelsi Bandaríkjanna við; San Quentin.
Ekkert lífsmark var að sjá í eða við fangelsið. Engu var líkara en byggingin væri minnisvarði um eitthvað sem var, en svo er ekki. Þarna eru menn teknir af lífi með eitursprautu og í Wikipedia segir: "As of 2001, San Quentin's death row was described as "the largest in the Western Hemisphere". Fangar á "dauðadeildinni" voru í desember 2008, 637 talsins. Meira að segja fangelsin í Texas státa ekki af svo fjölmennum dauðadeildum.
Sú hlið fangelsisins sem snýr að hinum ríka og snyrtilega smábæ, Larkspur, þar sem yfir 80% íbúanna eru af N-evrópskum uppruna, er máluð snyrtilega. Viðhald annarra hliða er verulega ábótavant. Það mætti kalla þetta "Pótemkin-tjöld".
Á árunum 1893 til 1937 voru 215 menn teknir af lífi með hengingu í San Quentin, en þá var sú aftökuaðferð lögð niður og gasklefinn tók við (myndin til vinstri).
196 menn mættu skapara sínum í þessum fjögurra fermetra klefa, en þegar gasið þótti ekki lengur nógu "mannúðlegt"árið 1995, var tekin upp eitursprautuaðferðin. Gasklefanum var breytt til þeirra nota, eins og sést á myndinni til hægri. Frá 1996 til 2006 var að meðaltali einn maður á ári "sprautaður", samkvæmt Wikipedia.
Ferðalög | 22.4.2011 (breytt kl. 16:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Uffe Elleman-Jensen er í ýmsum áhrifastöðum innan ESB.
Mogens Lykkatoft sósíal-krati og fyrrv. skattamálaráðhera
Er álit þessara manna trúverðugt í deilu Íslendinga og ESB? (Bretlands og Hollands) Jóhanna hlýtur að vera upp með sér að eiga þessa "vini".
![]() |
Undrandi á forseta Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | 19.4.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
... grillsjopunni í morgun og fékk mér eina pulsu. Mig langaði að drekka Egils appelsín með pulsunni, en sjoppan selur bara gosdrykki frá Vífilfelli.
Má það?
Veðrið skartaði sínu fegursta á Seyðisfirði, sól og blíða og sjoppan var full af skandinavískum unglingum sem komu með ferjunni.
Fjarðarheiðin er alhvít af þykkum snjóalögum og hún hlýtur að vera paradís vélsleðamannsins um þessar mundir.
![]() |
Grunur um samráð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | 19.4.2011 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.7.): 3
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 947236
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Í skjóli ESB-stjarnanna svikin við þjóðina
- Ofbeldishneigði dvergurinn í Portland
- Ætla Íslendingar að afhenda þúsund ára Alþingi sitt til búrókratanna í Brussel?
- Hvernig á að komast hjá handtöku
- Lífið krefur okkur um meira en að við séum "næs" "djókarar"
- Leynd fyrir Brusselmenn
- ESB eða ekki
- Trans-einstaklingur?
- Tjáning, hatur og hinseginfáni lögreglu
- Evrópusambandið eða ekki
Nýjustu albúmin
Af mbl.is
Innlent
- Borgarstjóri hrósar Verzlingum fyrir útileguna
- Í gæsluvarðhald eftir hnífstunguárás á Austurvelli
- Breytir öllu en ekki víst hvernig
- Myndir: Tugir þúsunda streyma í Hljómskálagarðinn
- Útilega Verzlinga svolítið mikið partý
- Mikilvægt að fylgjast með spá og eigin líðan
- Ellefu farist í bifhjólaslysum á áratug
- Mikil óvissa ríkir um framtíð hússins
Erlent
- Fundaði óvænt um kjarnorkuáætlunina
- Ökumanninum hent út af skemmtistað fyrir árásina
- Fellibylurinn Wipha veldur usla
- Hvattir til að minnka vatnsnotkun vegna hita
- Yfir þúsund látnir og átökum linnir loks
- Viðvörun vegna hitabylgju
- Börn með erfðaefni þriggja einstaklinga
- Blóðsjúgandi áttfætla sækir í sig veðrið á Íslandi