Bölvaður dóni og tækifærissinni

Það vantar ekki viskulegt yfirbragðið á andlit Þráins Bertelssonar. Röddin er sömuleiðis yfirveguð og gáfuleg.

Hann var góði og mjúki maðurinn í útvarpsþætti á RUV um helgina. Þá sagði hann að Íslendingar væru ríkir, bæði af orkuauðlindunum og ekki síst af mannauðnum.... að Íslendingar væru í eðli sínu gott fólk... og við ættum að einbeita okkur að því að rífast minna, en vinna meira saman.

Þetta rímar ekki vel við mann sem eys svívirðingum yfir samstarfskonur sínar á Alþingi, og segir svo þegar hann er krafinn um afsökunarbeiðni:

 "Fyrr frýs í Helvíti, en ég biðjist afsökunar á þessu".

FootinMouth


mbl.is Bað kýrnar afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vistkvíðasjúklingar

Stöðugt lesum við í fréttum áhyggjur einhverra yfir hnattrænni hlýnun. Þeir á "Loftslag.is" eru sérlega áhyggjufullir.

Áhyggjur af ísbjörnum er "in" í dag. Þeir sem mestar áhyggjur hafa, segja að þeir séu í útrýmingarhættu... sem er dálítið einkennilegt í ljósi þess að skotleyfum er úthlutað árlega á 800 dýr í Kanada og á Grænlandi. Errm

Ísbirnirnir sem villast til Íslands tilheyra Austur-grænlenska stofninum og veiðikvótinn úr honum er 50 dýr. Einhverjar líkur eru á því að ísbjörnum sem "bjargað" verður á Íslandi og sendir verða aftur til heimkynna sinna, verði skotnir af veiðimönnum þegar þeim verður sleppt í "frelsið".

"Vistkvíði" er viðurkenndur sjókdómur hjá Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni.


mbl.is Háhyrningur konungur dýranna?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tipplað á tánum

Múslímskum hryðjuverkasamtökum hefur algjörlega tekist ætlunarverk sitt, þ.e. að hræða umheiminn til hlýðni. Stjórnmálaleiðtogi eins öflugasta ríkis heims, Þýskalands, er nervus yfir orðavali sínu um hryllilegan fjöldamorðingja.

"Heimsyfirráð eða dauði" er kjörorð íslamskra hryðjuverkasamtaka. En svo segir fólk að ekki megi alhæfa um múslima í þessu sambandi, þetta sé bara örlítill minnihlutahópur. En samt fer allt á annan endan í mörgum ríkjum múslima í hatursáróðri gegn hinum vestræna heimi, sérstaklega Bandaríkjunum, ef styggðaryrði eru sögð um þessi samtök eða leiðtoga þeirra.

"Hófsamir múslímar" halda sig til hlés.

Rödd þeirra ætti að heyrast hátt í fordæmingu á hryðjuverkasamtökum sem starfa í nafni trúar þeirra. En það gerist ekki. Errm


mbl.is Merkel dregur í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ráðumst ekki í handahófskenndar fjárfestingar"

"Við eigum að fara hér að öllu með gát og fullri yfirvegun, en ekki ráðast í einhverjar miklar handahófskenndar fjárfestingar byggðar nánast á duttlungum og með því að reka puttann upp í loftið,“ sagði Ögmundur Jónasson.

Bíddu nú við! FootinMouth

Er ekki Landeyjahöfn einmitt skammarlegur minnisvarði um handahófskennda fjárfestingu, byggða á duttlungum með því að reka puttann upp í loftið?

Ég er kannski að misskilja þetta eitthvað. Átti þetta að vera ónothæf fjárfesting? Var það planið allan tímann? FootinMouth Ef svo hefur verið, þá er þetta náttúrulega brilljant fjárfesting og hefur tekist fullkomlega. Pouty


mbl.is „Semjum ekki við náttúruöflin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svindl á Ebay

Ég pantaði mér "penis enlarger" fyrir 50$ á Ebay.

Helvítis kvikindin sendu mér stækkunargler! Angry


Eru þeir ekki að fatta þetta?

Það er ekkert skrítið að vinkona mín Charlize Theron hafi haldið með Arsenal í þessum leik.

Það þarf ekki kjarnorkueðlisfræðing til að skilja það. Errm


mbl.is Hefur svikið Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta breytir engu

Þetta er e.t.v. tímabundið áfall fyrir Al Qaída en svo tekur einhver annar við.

Kæmi ekki á óvart ef hryðjuverkasamtökin efldust í kjölfarið með tilheyrandi hefndaraðgerðum og blóðbaði. Blóðið sem rennur verður auðvitað frá saklausum borgurum í Evrópu og Bandaríkjunum.

Mikið var fagnað þegar Saddam Hussein var handtekinn í Írak og talað um að nú væri stríðið unnið. Annað kom á daginn. Errm


mbl.is Osama bin Laden allur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hughes um Eið: "Star performance"

"Mark Hughes was not surprised by the star performances of Eidur Gudjohnsen and Bobby Zamora in Fulham's 3-0 win at Sunderland."

  Mark Hughes í viðtali við Sky Sports eftir leikinn við Sunderland.

Glæsileg frammistaða hjá Eiði sem er allur að koma til.


mbl.is Aftur unnu Eiður og félagar 3:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

I left my heart in San Francisco

Frisco 302

Union Square í San Francisco er miðsvæði hótela, veitinga og verslunarreksturs í borginni. Myndina tók ég af svölum veitingastaðarins Cheese Cake Factory (gaman að skoða slóðina) af efstu hæð Macy´s, þekkts stórmarkaðs í USA.

Á myndinni má sjá Levi´s gallabuxnabúð,  "móðurverslun" allra Levi´s verslana í heiminum. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í San Francisco og þetta er elsta og stærsta verslunin. Að sjálfsögðu keypti ég mér gallabuxur þarna, enda helmingi ódýrari en á Íslandi.

Torgið fékk nafn sitt af  Union_Army , her Norðurríkja Bandaríkjanna í borgarastyrjöldinni 1861-1865, en svæðið var notað til liðssafnaðar o.þ.h.

Frisco 551

Frisco 552

Fyrirsögnin á blogginu er fengin úr lagi sem  Tony_Bennett gerði ódauðlegt fyrir San Francisco og e.t.v. ekki síst fyrir sjálfan sig. Lagið er þó tiltölulega lítt þekkt á Íslandi og heyrist sárasjaldan "hér á landi á" eins og dægurlagaskáldið kvað.

En Tony Bennett var fleira til lista lagt en að syngja, því hann hannaði og málaði hjörtu, sem komið er fyrir í hornum torgsins. Þannig gat hann sagst hafa skilið hjarta sit eftir í San Francisco, í orðsins fyllstu merkingu.

Frisco 337

Frisco 339

Frisco 343

Frisco 344

Frisco 538

Frisco 539

Skýjakljúfarnir í San Francisco eru sumir hverjir komnir til ára sinna, sumir 70-90 ára gamlir. Svo eru nýrri innan um sem skapa miklar andstæður í byggingalist.

Frisco 546

Stuðlaberg að hætti Guðjóns Samúelssonar?

Frisco 547

Gamalt og nýtt.

Frisco 549

 

Frisco 351

Pálmatré eru víða í borginni en þau eru þó ekki í náttúrulegu umhverfi sínu, því borgin er of norðarlega til þess. Þau þrífast samt vel því þarna frýs aldrei og meðalhiti yfir köldustu vetrarmánuðina er 8-12 gráður.


Pele: "Ég var betri en bæði Messi og Ronaldo"

peleHinn sjötugi Pele lét þessi orð falla í tilefni endurkomu New York Cosmos í MLS deildina í Bandaríkjunum.

Þetta kemur fram í netmiðli goal.com 

Karlagrobbið byrjar oft um sjötugt Errm

En auðvitað var kallinn asskoti góður.


mbl.is Frábært mark hjá Messi (myndband)
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband