Sammála sauðskinnsbóndanum

Þau rök halda ekki vatni fyrir Evrópusambandsaðild, að aðild að ESB hafi gagnast mörgum ríkjum þess ákaflega vel.

Hvert einasta land í Evrópu... og í heiminum öllum, ef út í það er farið, er einstakt. Þess vegna verður að vega og meta kostina og gallana fyrir Ísland, með ESB-aðild, en ekki að ræða það hvað Hollendingar og Danir eru ánægðir (eða óánægðir Errm) með veru sína í ESB.

Ég hygg að Jón Bjarnason hafi verið drýldinn á svip, þegar hann flutti ræðu sína á ráðstefnu í Biarritz í Frakklandi og sagði að hann væri sannfærður um að hagsmunum Íslendinga væri betur borgið utan Evrópusambandsins en innan þess.

Ég held ég taki undir með kallinum.


mbl.is Betur sett utan ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Segjum EU tryggir Spánverjum um 80% af markaði EU heildarinnar af grænmetishráefni, og vernda frá textil frá 92% heimsins að hluta t.d.  Spánverjar hafa líka fengið lánafyrirgreiðslur til bygginga iðnaðar, flest öll ríki í EU hafa sitt hlutverk innan heildarinnar þannig að án hennar væri almenn lífskjör verri.

Ef Íslendingar geta aukið virðisauka hráefna  [fullvinnsla] og selt utan EU þá  stórgræða þeir á því að fara ekki inn. 

Flest ríki EU hafa litla sem enga útflutnings möguleika yfir utan EU er því eðlilegt að þau séu meðlimir.

Júlíus Björnsson, 26.11.2009 kl. 22:58

2 Smámynd: Offari

Ég tek líka undir.

Offari, 26.11.2009 kl. 23:37

3 Smámynd: Sigurjón

Tek í sama streng.

Sigurjón, 28.11.2009 kl. 08:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband