Mistækur þjálfari

willum_jpg_550x400_q95Ég held að Willum sé drengur góður, en hann virðist þola pressu afar illa. KR-ingar voru með langbesta mannskapinn þegar hann gerði þá að Íslandsmeisturum, nánast sjálfspilandi lið. ÉG hefði treyst mér til að gera þá að meisturum. En svo fór hann á taugum þegar á móti blés, það mátti glögglega sjá í sjónvarpsviðtölum við hann.

Hungrið í Valsmönnum var mikið þegar þeir urðu meistarar 2007, en liðið spilaði samt engan stjörnubolta. Eftir titilinnn var "down hill" hjá liðinu og sumarið var herfilegt og ekki skánaði það með tilkomu Atla, nema síður sé.

Keflvíkingar hafa spilað á köflum glimrandi fótbolta og ég vona að Willum skemmi það ekki.


mbl.is Willum Þór skrifaði undir hjá Keflavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband