Nú birtir til hjá Mogganum

Svei mér þá, ef ég gerist bara ekki áskrifandi aftur að Mogganum.

Ég hef séð að fjölmargir bloggarar hafa verið að velta sér upp úr því undanfarna daga, hver taki við ritstjórastarfinu. Þegar nafn Davíðs kom upp, þá sögðu hatursmenn hans að ef af því yrði þá myndi það marka endalok Morgunblaðsins.

Því er ég algjörlega ósammála.


mbl.is Davíð og Haraldur ritstjórar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held maður íhugi það alvarlega að gerast áskrifandi núna

Atli Már Sigmarsson (IP-tala skráð) 24.9.2009 kl. 18:07

2 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Ekki satt nú hefur maður efni á að styðja málstaðinn. Ísland aftur í skotgrafirnar. Gagnbylting er hafin. Bara enginn sem veit hverju á að bylta eða hvers vegna. Það er einkennilegt að toppar stjórnmálamanna sem hafa verið í meira en 40 ár við völd eru enn þá virkir. Davíð. Ólafur Ragnar, Jóhanna, Ragnar Arnalds, Svavar Gestsson, og eflaust fleiri liggja yfir öllu einsog daunn. Það er engin framtíðarsýn í sjónmáli nema ESB. Það verður að flytja inn umræðuna í einsog mat handa hungruðum heimi. Ef við fengjum ekki andlega næringu erlendis frá þá væru menn hérna andlega hungurmorða. Davíð flutti inn ESB á sínum tíma það er amk staðreynd. Annars hefði hann ekki komist til valda.

Gísli Ingvarsson, 24.9.2009 kl. 18:33

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Nú, flutti hann inn ESB? Ég gef mér að þetta sé innsláttarvilla hjá þér.

Gunnar Th. Gunnarsson, 24.9.2009 kl. 18:43

4 identicon

Jú, Davíð flutti ESB inn. Hann er með það í gámi niðr'á höfn og ætlar að taka það í nefið við fyrsta tækifæri.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 24.9.2009 kl. 20:44

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Það er ekki alltaf gott að vera zammála 'Reyðferðíngi'.

En maður verður nú ztundum að gera fleira en gott þykir...

& góð blogg hjá þér undanfarin líka, dona zwo að ég zkemmti nú zkrattanum...

Steingrímur Helgason, 24.9.2009 kl. 22:30

6 Smámynd: Offari

Ég reikna með að Davíð standi sig vel í þessu starfi líkt og öðrum störfum sem hann hefur tekið að sér.  En það virðist vera orðin árrátta hjá mönnum að kenna honum um allt sem miður fer í þessu landi. Þó er þetta í fyrsta sinn sem ég hef séð hunum kennt um að að hafa flutt inn Esb óværuna.

Ef það sannast á hann hætti ég að lesa moggann.

Offari, 24.9.2009 kl. 23:45

7 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Offari

Davíð og Geir ættu að skammast sín fyrir að starta stóru jarðskjálftunum í Kaliforníu fyrir rúmum 100 árum. Íbúar fylkisins voru ekki hrifnir. Og skemmdarverkið þegar þeir settu Lemannsbanka á hausinn verður seint fyrirgefið.

Fleira mætti telja upp - Móðuharðindi - Svarta dauða - eldgos og flóðbylgjur.

Davíð - skelfir vinstri villunnar - ég tel  rétt að gerast áskrifandi aftur.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 25.9.2009 kl. 01:00

8 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

 Takk fyrir skjallið, Steingrímur og Offari og Ólafur.... góðir

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.9.2009 kl. 01:13

9 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ég gerðist áskifandi aftur fyrir 7 tímum.

Júlíus Björnsson, 25.9.2009 kl. 02:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband