Viðkvæmar trúnaðarupplýsingar?

Ég botna ekkerti í hræðslu stjórnarflokkanna að upplýsa almenning um þessi drög og gaman væri að vita hvor flokkurinn hafi lagt áherslu á leyndina. Samfylkingin, vegna þess hversu aumingjalegt þetta er, eða VG, vegna svika við kjósendur sína? Nema hvort tveggja sé.

Þeir eru athyglisverðir tveir síðustu liðirnir:

  • Að tryggja lýðræðislegan rétt til að stýra almannaþjónustu á félagslegum forsendum
  • Að standa vörð um réttindi launafólks og vinnurétt.
  • Er það ekki magnað að þurfa yfir höfuð að standa í samningaviðræðum við erlenda aðila um þessa hluti á Íslandi? 


mbl.is ESB-tillagan birt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Helgi Steinarsson

Þessir tveir punktar sem þú nefnir sýna vel fyrirsláttinn og tilgerðina í framsetningu ríkisstjórnarinnar. Þessir punktar eru merkingarlausir sem krafa um séryfirráð Íslands eins og þeir eru settir fram.

Lýðræðislegur réttur hverra er átt við? Íslendinga? Evrópuþegna?

Hver á að standa vörð? Ísland? Evrópa?

Svo má velta því fyrir sér því sem þú ert að benda á, sem sagt það hvort Evrópusambandið sé í huga ríkisstjórnarinnar svo ólýðræðislegt og andsnúið réttindum launafólks að það þurfi að verja þau mál sérstaklega. Sú túlkun er sú eina bitastæða (sbr. merkingarleysið í kröfunni hér að ofan) og er athygliverð.

En áfram skal haldið við að selja Íslendingum ESB fixið. Beint í æð.

Þorsteinn Helgi Steinarsson, 15.5.2009 kl. 09:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband