Heilaþvottastöð

Íslenska þjóðin hefur verið heilaþvegin. Heilaþvottastöð Baugsveldisins hefur verið afkastamikil undanfarin ár. Að þvottinum afstöðnum, var þeytivindan sett á 1.400 snúninga og hún snýst enn. Þegar slökk verður á henni, mun fólk ráfa um ringlað í einhvern tíma.... en hvað svo?

Ég renndi í fljótheitum yfir álit bloggheimsins á Davíðs-viðtalinu. Andstæðingar Davíðs tala um : Geislabaug, dramatík, leiksigur.... en engin gagnrýnir efnislega það sem Davíð sagði í viðtalinu. Segir það ekki allt sem segja þarf?


mbl.is Davíð í Kastljósviðtali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Davíð Löve.

Loksins þegar fólk fer að hugsa sjálstætt og kokgleypir ekki lengur bullinu í íhaldinu er það heilaþvegið af Baugsveldinu? Er orðið óþægilegt að vita af því að öll ykkar áróðursmaskína var full af skít? Kerfið sem þið dásamið er hrunið en þið viljið samt viðhalda því. Eru þetta ekki landráð? Ekki reyna að draga þjóðina dýpra í skítinn.

Davíð Löve., 25.2.2009 kl. 02:30

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hvað kerfi höfum við dásamað og er hrunið?

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.2.2009 kl. 03:08

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það kerfi er að virka hjá mér ennþá

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.2.2009 kl. 09:21

4 Smámynd: Örn Arnarson

Er það ekki akkúrat vandamálið með frjálshyggjupésa?  "Að meðan það virkar hjá mér, er mér skítsama um alla aðra"

Örn Arnarson, 25.2.2009 kl. 09:47

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Markaðskerfið og kapitalisminn hefur ekki hrunið, en hann hefur orðið fyrir áfalli og ekki í fyrsta skiptið.

-

Ég hef séð marga vinstrisinna gagnrýna þessi orð Hannesar að "græða á daginn og grilla á kvöldin". Mér sýnist á öllu að þeir hafi ekki skilið þetta hjá honum, enda ekki við öðru að búast frá fólki sem skilur orð eins og hagnaður, arður og gróði, sem skammaryrði.

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.2.2009 kl. 10:20

6 Smámynd: Hlédís

Hlédís, 25.2.2009 kl. 10:27

7 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta myndband, sem sett er saman af Láru Hönnu Einarsdóttur, er ótrúlega vitlasut. Allt er slitið úr samhengi og sett fram í pólitísku áróðurskyni og til þess fallið að rugla fólk í ríminu.

-

Davíð Oddson var skipaður Seðlabankastjóri 2005 og húrrahrópin sem sett eru inn í myndbandið eru öll frá því fyrir þann tíma, þegar bankarnir voru að byrja sína útrás. Þá mærðu þá allir, enda skiluðu þeir gríðarlegu fjármagni í ríkissjóð. ALLIR mærðu velgengni bankanna, nema kannski Steingrímur J. og Ögmundur, en það var á forsendum sem engin skilur nema e.t.v. flokksfélagar þeirra eins og Lára Hanna o.fl.

-

Árið 2006 og sérstaklega árið 2007, voru blikur á lofti í fjármálaheimi veraldarinnar. Á sama tíma voru íslensku bankarnir síður en svo að draga úr útrásinni og það var það sem Davíð varaði við. Það var engin ástæða til slíkra viðvarana árin 2001-2005, enda bankarnir mörgum sinnum minni en síðar varð.

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.2.2009 kl. 11:58

8 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta er rangt hjá þér Hilmar.

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.2.2009 kl. 13:16

9 identicon

Afneitunin er greinilega eitthvað sem þið nýfrjálshuggjudúddarnir eigið sameiginlegt , samanber Davíð , Hannes og þig sjálfan , ekki hægt annað en að vorkenna ykkur

Jón Ágúst (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 16:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband