Innbrotsssaga frá Reyðarfirði

Á aðfararnótt laugardags var brotist inn í Olís á Reyðarfirði. Það sem var óvenjulegt við þetta innbrot var það, að ekki var um auðgunarbrot að ræða, heldur vegalausir sjómenn sem voru að krókna úr kulda og þeir brutu rúðu til þess að komast inn til að hlýja sér. Engan leigubíl var að finna, þar sem undirritaður var í námslotu í Reykjavík.

 Þegar sjómönnunum hafði tekist að losna við mesta hrollinn, þá hringdu þeir í umboðsmann Olís á svæðinu og lögregluna líka. Umboðsmaðurinn mætti á svæðið og spjallaði við mennina sem voru hinir auðmjúkustu skilst mér og lofuðu að borga skemmdirnar eftir sig. Þegar lögreglan mætti, þá voru mennirnir umsvifalaust settir í handjárn fyrir aftan bak og svo var þeim stungið í steininn.


mbl.is 14 ára piltar brutust inn og stálu bílum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Heheh.. já, engin lögga á Reyðarfirði

Gunnar Th. Gunnarsson, 2.12.2008 kl. 14:49

2 identicon

 ...þetta mun nú samt ekki alveg rétt vera.. ég veit að þessum mönnum hafi nú bara verið ekið til skips af löggunni ...en góð saga á auðvitað ekki að gjalda sannleikans :)

Gestur (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 17:50

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ok... takk gestur  En þeir voru handjárnaðir samt... heyrði ég

Gunnar Th. Gunnarsson, 2.12.2008 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband