Orðurnar úr silfri líka?

Orðuhafarnir á Bessastöðum í kvöld. Mikið rosalega er ég ánægður með fólkið sem heiðraði "strákana okkar" í miðbænum í kvöld. Óli Stef klikkaði ekki frekar en fyrri daginn í viðtölum og kom með nokkur gullkorn..... eða ætti maður kannski frekar að segja "silfurkorn" Joyful 

"Gott silfur er gulli betra" sagð Valgeir Guðjónsson Grin. Logi Geirsson kom líka með ágætan vinkil í viðtali þegar hann sagði að nú yrði pressa á landsliðinu í framhaldinu. Vonandi þurfa þeir ekki að skila orðunum ef illa gengur ShockingJoyful


mbl.is Orðuveiting á Bessastöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

"Gott silfur er gulli betra" sagði Valgeir Guðjónsson, sá flotti strákur.  En rétt skal vera rétt og hann var ekki höfundur að þeim fína málshætti; það var hann Markús okkar Þórhallsson sem frumsamdi hann og VG (ekki vinstri grænir) fékk góðfúslegt flutningsleyfi frá höfundinum í morgun(útvarpinu) til að nota þetta gull/silfur-korn í móttökunni. 

Flottir þessir strákar!  

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 28.8.2008 kl. 01:25

2 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

PS. Kjaftaskur eins og ég er.. er auðvitað vön því að þurfa stundum að éta orð mín þegar mér er bent á að réttara mál sé til staðar. Ég þakka hinsvegar almættinu fyrir að hafa aldrei fengið orður til að þurfa að borða við svipað senaríó.

Talandi um að taka stórt uppí sig... well best not..

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 28.8.2008 kl. 01:30

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Heheh tak fyrir þetta Helga

Gunnar Th. Gunnarsson, 28.8.2008 kl. 07:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband