Kjarasamningar í hættu?

gasprice.gif

Maður veltir óhjákvæmilega fyrir sér hvað þetta getur gengið langt. Í Bandaríkjunum er olíverð afar mismunandi eins og sést á þessu korti. Þar sem það er dýrast er það meira en helmingi lægra en hér. Kortið sýnir olíverð í apríl 2006. Ef smellt er á myndina fæst upp verðið eins og það er í dag.


mbl.is Eldsneytisverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Kristinsson

það er alveg ljóst að kjarasamningar eru í hættu því að hækkanir og gengissig krónunnar eru búin að éta launahækkanirnar upp. Og ef að verkalýðshreyfingin fer af stað þá mun það þýða enn meiri þenslu og enn meiri verðbólgu með kunnuglegri niðurstöðu.

Maður vonar að þetta fari allt á besta veg því að mörg heimili landsins eru með stór íbúðarlán og ef þetta fer allt saman af stað að þá er ég annsi hræddur um að fólk sitji uppi með fasteignir sem að það getur ekki borgað af og óseljanlegar líka vegna þess að verð fasteignarinnar verður lægra en lánið á henni. Þetta lítur ekki vel út.

Pétur Kristinsson, 17.3.2008 kl. 14:53

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Satt segirðu Pétur, skelfilega horfur

Gunnar Th. Gunnarsson, 17.3.2008 kl. 15:01

3 identicon

Ég hef dundað mér við að skoða þetta blogg og get ekki annað en velt fyrir

mér hvor enginn  þurfi að vinna lengur því flest allt er skrifað á hefðbundnum

vinnutíma, menn bara að dunda sér heima eða í vinnunni?  væri ekki bara 

best að senda þennan fýr í vinnubúðir? þar  geta  ósakhæfir bloggarar 

gasprað. 

Ævar Oddur Ævarsson (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 20:12

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hefur nú enn einn Ævarsson bróðirinn bæst í hópinn sem ofsækir mig með leiðindum á blogginu. Spurning hvort Birgir, Arnar og Ævar eigi við einhvern ættardjöful að eiga. Þessum mönnum er auðvitað bara vorkunn.

Gunnar Th. Gunnarsson, 18.3.2008 kl. 13:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband