Góður siður

Að flagga í hálfa stöng við andlát þorpsbúa á Reyðarfirði hefur tíðkast alla flöggunartíð. Allir sem flaggi geta valdið og eiga flaggstöng í garðinum sínum, flagga. Þegar fólk sér flöggunina, spyr það: "Hver var að deyja?"

Samfélagið á Reyðarfirði er sennilega enn breyttara en á Húsavík, eftir að álver Alcoa hóf starfsemi sína í firðinum 2007. Íbúum hefur fjölgað um helming, úr 600 í 1200 og þar af góður partur af fólki sem átti ekki tengingu við staðinn fyrir. En ferðamenn eru örugglega fleiri á Húsavík. Enginn skaði er af því þó ferðamenn eða aðrir verði hissa á að sjá flaggað í hálfa stöng.

Í sjálfu sér breytir engu hvort opinberir aðilar flaggi í hálfa stöng eða ekki, því þorpsbúar sjálfir á Reyðarfirði sem og í öðrum bæjarkjörnum í Fjarðabyggð munu vonandi halda áfram í siðinn.


mbl.is Hætt að flagga í hálfa stöng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

Siðurinn er fallegur og sýnir þann hlýhug og þá samhygð sem býr með íbúum samfélags.

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 27.10.2015 kl. 15:53

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sammála. Undarleg hegðun hjá bæjarstjórn Húsavíkur.

Varla er það voðalegt að ferðamenn verði hissa. Hvað gengur þeim til?

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.10.2015 kl. 16:43

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessi góði og fallegi siður tíðkast víða um land og væri það skref afturábak ef þetta legðist af.  Margt er framkvæmt vegna vana og á meðan það veldur engum skaða er óþarfi að vera að fetta fingur út í það.

Jóhann Elíasson, 28.10.2015 kl. 12:41

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sammála og einmitt vegna nándarinnar í litlu samfélagi, finnst mér mikilvægt að fólki fái að vita sem fyrst um andlátið.

-

Jafnvel þó maður hafi ekki þekkt viðkomandi mikið, jafnvel ekkert, eru miklar líkur á að maður þekki einhvern annan nákominn þeim látna.

-

Ég heyrði á Bylgjunni í morgun, viðtal við bæjarstjórann á Húsavík og hann kom með það sjónarmið að flaggað hafi verið fyrir brottfluttum Húsvíkingum líka þannig að dauðsföll á ári voru um 40-50 og af því að einnig er siður að flagga í hálfa á jarðarfarardaginn og svo í fulla stöng að jarðarför lokinni, (einnig hér eystra) væru þetta allt að 70 dagar á ári sem flaggað væri í hálfa.

Þetta er auðvitað dálítið mikið og eiginlega undarlega mikið. Á Reyðarfirði eru ca 3-5 jarðarfarir á ári. Kannski Reyðfirðingar deyji síður en Húsvíkingar.

Gunnar Th. Gunnarsson, 28.10.2015 kl. 16:57

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég heyrði þetta viðtal líka og ég gat ekki betur heyrt á mannninum að þetta kæmi til út af því að hann NENNTI þessu ekki lengur, það væri erfitt að "þurfa" að flagga svona oft á ári. frown

Jóhann Elíasson, 29.10.2015 kl. 08:38

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, sennilega of mikil fyrirhöfn hjá þeim, blessuðum

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.10.2015 kl. 09:25

7 identicon

Það voru bara örfáar hræður sem tóku þessa ákvörðun. Það er mikil óánægja meðal bæjarbúa.

Hreiðar Másson (IP-tala skráð) 30.10.2015 kl. 08:26

8 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

Er ekki líka möguleiki að sleppa því að flagga fyrir brottfluttum nema um sé að ræða nýflutta einstaklinga, vel þekkta eða á einhvern hátt sítengda bænum?

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 30.10.2015 kl. 16:11

9 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Jú, það finnst mér alveg mögulegt og eignlega sjálfsagt.

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.10.2015 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband