Frekar vil ég bjartara síðdegi

Meðal vísitölufyrirvinnan kemur heim úr vinnu um eða uppúr kl. 17 síðdegis. Flestar fjölskyldur á Íslandi borða kvöldmat milli klukkan 18 og 19.30.

Ég vil hafa birtu og yl úti og eiga möguleika á að njóta kvöldmatarins utandyra með fjölskyldunni á sumrin. Síðdegissólin er mér meira virði en morgunsólin. Ég held að fleiri njóti sólarinnar þegar þeir eru ekki að vinna.

Ég sé ekki neitt heilsusamlegt við að fækka gæðastundum okkar í sólinni.


mbl.is Svona birtir með breyttri klukku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er algjörlega sammála þér Gunnar. Ég fæ ekki með nokkru móti skilið hvernig morgunbirta, þegar þorri þjóðarinnar er inni, á að bæta geðheilsu fólks. Ég vil hafa bjart úti þegar ég er búinn að vinna ekki á meðan ég er að vinna!

Ævar (IP-tala skráð) 30.11.2014 kl. 17:08

2 Smámynd: ViceRoy

Var einmitt að hugsa þetta þegar ég horfði á þetta myndband... sólin er komin upp almennilega á stystu dögunum 10:30-11:00 og er sest í kringum 17
Hver er tilgangurinn að flýta tímanum um t.d. 2 tíma og fá sólina sesta klukkan 15? Er það eitthvað mikið skárra? :)

Ekki það það væri voða notalegt að vakna nær birtunni í tíma, en það eru til ljós á heimilum :Þ

ViceRoy, 30.11.2014 kl. 20:05

3 identicon

Látum oss nú sjá ... ég fer út úr dyrum yfirleitt kl. 7:30 og þá er myrkur.  Ef klukkunni yrði breytt myndi ég leggja af stað kl. 7:30 en í myrkri samt sem áður.  Frábært.

Hilmar (IP-tala skráð) 1.12.2014 kl. 00:06

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég vil hafa birtu og yl úti og eiga möguleika á að njóta kvöldmatarins utandyra með fjölskyldunni á sumrin.

 

Ef mig misminnir ekki því meir, þá er yfirleitt ekki skortur á síðdegisbirtu á sumrin.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.12.2014 kl. 15:36

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Til að forðast misskilning þá er fyrri setningin hjá mér hér fyrir ofan bein tilvitnun í færsluna.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.12.2014 kl. 15:38

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ylurinn hverfur yfirleitt fljótt á Íslandi þegar sólin sest. Á sumrinn er hún farin á bak við fjöll hér á Reyðarfirði upp úr kl. 18 þegar best lætur. Væri til í að lengja það, ekki stytta.

Gunnar Th. Gunnarsson, 8.12.2014 kl. 21:01

7 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

 Sammála þér Gunnar, það eru svo margir í dreyfbýlinu sem ekki njóta sólar eftir kl. 6 til 6.30 sbr.

vestfirðina og svo auðvitað þið þarna fyrir austan. Hvers vegna má ekki gefa okkur aukabirtu á sumrin og stytta hana og hafa bjartara á morgnana í skammdeginu.

Bergljót Gunnarsdóttir, 18.12.2014 kl. 21:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband