Strandverðir

055 

Þessi bryggja er ekki nógu stór. "They are doing it wrong" Tounge

Tvo stór skip stranda í og við Reyðarfjörð (Fáskrúðsfjörð) með nokkurra daga millibili. Í bæði skiptin var einmuna veðurblíða og logn. Í fyrra strandinu sofnaði stýrimaðurinn á vakt og hefur hann þegar fengið 700 þús. kr. sekt og og á væntanlega yfir höfði sér réttindamissi. Í seinna strandinu mun vélarbilun hafa verið ástæðan. Myndin er tekin á föstudaginn við bæinn Eyri í Fáskrúðsfirði en þá slitnaði taugin þegar varðskipið Þór reynda að draga Green Freezer á flot.

Nóg hefur verið að gera hjá björgunarsveitum í Fjarðabyggð að undanförnu og eru þeir farnir að ganga undir nafninu Strandverðir (Bay watch). 

033 

Hér er Akrafellið dregið til hafnar í Reyðarfirði eftir nokkurra daga dvöl við bryggju á Eskifirði. Þar var tjaslað í botninn á skipinu svo það sykki ekki. Óvíst er um örlög skipsins en líklegt að það fari í brotajárn. 


mbl.is Þurfa að fjarlægja farm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Kannski ráð hjá þeim að fá "alvöru" strandverði, Pamelu Anderson og Co. Þá ættu þeir erfiðara með að sofna styrimennirnir.

Jósef Smári Ásmundsson, 21.9.2014 kl. 15:48

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hehe já

Gunnar Th. Gunnarsson, 21.9.2014 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband