Umhverfisverndarsamtök fullyrtu að það það yrði 20-50% fækkun

Í skýrslu sem Náttúruverndarsamtök Íslands og fleiri umhverfisverndarsamtök létu gera fyrir sig í aðdraganda framkvæmdanna við Kárahnjúka, laust eftir aldamótin, var fullyrt með "hjálp" sérfræðinga úr ferðaþjónustu, að vegna skaðaðrar ímyndar Íslands sem náttúruperlu myndi ferðamönnum fækka á Austurlandi um 50% og á landinu öllu um 20%. Ekkert var að marka þetta frekar en annað sem úr þessari áttinni kemur.

Allt var þó reynt til að þetta mætti nú rætast, m.a. í Þýskalandi þar sem íslenskir umhverfisvinir héldu pólitíska ljósmyndasýningu með ýmsum furðulegum yfirlýsingum og jafnvel sýndar myndir af hálendinu sem voru framkvæmdunum óviðkomandi. Vitnað var í erlenda gesti sýningarinnar í fjölmiðlum, bæði innlendum og erlendum, þar sem þeir lýstu hryggð sinni yfir framkvæmdunum.

Sömuleiðis reyndu umhverfisverndarsamtök með Árna Finnsson í broddi fylkingar að spylla fyrir lánamöguleikum Landsvirkjunar. Þessir aðilar stunduðu kerfisbundna og vel skipulagða skemmdarstarfsemi á því sviði, m.a. með hótunum við banka sem hugðust lána fé til framkvæmdanna.

Aldrei er þetta fólk dregið til ábyrgðar á gjörðum sínum og fullyrðingum.


mbl.is 660 þúsund ferðamenn 2012
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Er virkjunin við Kárahnjúka ekki einmitt orðin ein af vinsælli ferðamannastöðum á Austurlandi?

Axel Jóhann Axelsson, 11.1.2013 kl. 18:54

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Jú, það má færa rök fyrir því

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.1.2013 kl. 19:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband